Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Blaðsíða 23
8. RIFTUN VEGNA VANHEIMILDAR OG ANNARS
HEIMILDARSKORTS
Um rétt kaupanda til riftunar vegna vanheimildar eða annars konar heimild-
arskorts gilda sömu reglur og um rétt til riftunar vegna galla, sbr. 46. og 47. gr.
fkpl.
Er því ekki heldur ástæða til að fjalla sérstaklega um skilyrði riftunar eða
framkvæmd vegna reglna um vanheimild.
9. SÉRSJÓNARMIÐ UM SKILYRÐI RIFTUNAR VEGNA
GREIÐSLUDRÁTTAR KAUPANDA
9.1 Vanefnd kaupanda á aðalskyldu hans
Þegar um greiðsludrátt af hálfu kaupanda er að ræða gildir skilyrðið um
verulega vanefnd líka, sbr. 1. mgr. 51. gr. fkpl.
Sömu sjónarmið eiga við að flestu leyti þegar metið er hvort í greiðsludrætti
kaupanda felist veruleg vanefnd eða ekki.36 Það sem þó skilur á milli er að
matið á því, hvort vanefnd sé veruleg eða ekki, er strangara þegar skylda til
peningagreiðslu er ekki efnd en þegar um aðrar greiðslur er að ræða. Er þetta
meginregla í kröfurétti.37
Heimilt er að setja kaupanda viðbótarfrest til greiðslu, sbr. 3. mgr. 51. gr.
fkpl., með sömu réttaráhrifum og þegar kaupandi setur seljanda slíkan frest.
Gilda sömu reglur um slíka fresti og áður er lýst, allt að teknu tilliti til þess að
matið er strangara í þeim tilvikum þar sem um vanefnd á peningagreiðslum er
að ræða. Að auki getur seljandi sett kaupanda viðbótarfrest ef vanefnd kaup-
anda felst í viðtökudrætti, þ.e. hann neitar að taka við fasteigninni og seljandi
hefur sérstaka hagsmuni af því að geta afhent eignina.
9.2 Vanefnd kaupanda á aukaskyldum hans
Þegar kaupandi vanefnir aðrar skyldur en greiðslu kaupverðsins, hvort sem
þær felast í viðtökudrætti af hálfu kaupanda eða öðrum vanefndum, getur selj-
andi rift ef vanefnd telst veruleg, sbr. 2. mgr. 51. gr. fkpl. Þar sem hér er ekki
um aðalskyldur kaupanda að ræða þarf vanefnd hans á þeim að vera alvarleg til
þess að skilyrðinu sé fullnægt. Það þarf að vera ljóst að það skipti seljanda
miklu að kaupandi efni þessa skyldu sína og að kaupandi hafi vitað eða mátt
vita um hvaða þýðingu þetta hafði fyrir seljandann.38
Að öðru leyti er ekki sérstök ástæða til að fjalla um reglur er varða riftunar-
rétt seljanda.
36 Stein Rognlien: Avhendingslova, kommentar til loven om avhending (kj0p og salg) av fast
eiendom, bls. 135.
37 Bernhard Gomard: Obligationsret 2. del, bls. 102.
38 Alþingistíðindi 2001-02, A-deild, bls. 1483. Sjá og Stein Rognlien: Avhendingslova, kommentar
til loven om avhending (kjpp og salg) av fast eiendom, bls. 136.
131