Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 60

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 60
lög um lagaskil á sviði samningaréttar og Rómarsamninginn og þjónar best hags- munum samningsaðila. I enskum dómi, fíank of Baroda gegn Vysya Bank114, var deilt um banka- ábyrgð (letter of credit). Dómurinn er dæmi um önnur viðhorf sem virðast gilda í enskum rétti um beitingu 5. mgr. 4. gr. Rómarsamningsins. Málið varðaði nokkra samninga milli mismunandi aðila. Málavextir, að því leyti sem hér skiptir máli, voru þeir að indverskur kaupandi fór þess að leit við indverskan banka (Vysya Bank) að hann gæfi út bankaábyrgð til handa seljanda, írsku fyrirtæki með starfstöð í Lundúnum. Bankaábyrgðina skyldi gefa út til handa seljanda fyrir milligöngu annars banka, Bank of Baroda í Lundúnum, sem gæfi samþykki sitt fyrir ábyrgðinni. Agreiningur varð milli útgáfubankans í Indlandi (Vysya Bank) og samþykkisbankans í Lundúnum (Bank of Baroda). Dómurinn taldi rétt að beita sömu lögum um alla samningana í hinum mismunandi réttarsamböndum sem til úrlausnar voru. Að öðrum kosti gæti niðurstaðan orðið sú að beita ætti mismunandi lögum, allt eftir því gegn hvorum bankanum handhafi bankaábyrgðarinnar beindi kröfu sinni. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. Rómarsamningsins giltu ensk lög um samninginn milli handhafa bankaábyrgðar og stefnandans í málinu, samþykkisbankans, en indversk lög um samninginn milli handhafa bankaábyrgðar og stefnda, útgáfubankans. Ekki væri hægt að una við slrka niðurstöðu þar sem hún fæli í sér „wholly undesirable multiplicity of potentially conflicting laws“. Niðurstaðan varð því sú að beita skyldi 5. mgr. 4. gr. við ákvörðun á því hvaða lög giltu um samninginn milli handhafa bankaábyrgðar og útgáfubankans þannig að beita skyldi sömu lögunum um alla samningana í þessu fjölþætta réttarsambandi, þ.e. enskum lögum.115 Af niðurstöðu dómsins má ráða að önnur sjónarmið eigi við um mat á því hvenær horfa beri fram hjá leiðbeiningarreglunum með stoð í 5. mgr. 4. gr. en lögð voru til grundvallar í hollenska dóminum. Hér lítur dómurinn svo á að ekki beri að hafa hliðsjón af leiðbeiningarreglunum telji dómurinn ekki henta að beita þeim í því tilviki sem um ræðir.116 6. NEYTENDASAMNINGAR 6.1 Almennt Þeirrar þróunar hefur gætt í lögum margra Evrópuríkja að veita neytendum sérstaka réttarvemd með ófrávíkjanlegum reglum. Hinu sama gegnir um alþjóð- legan samningarétt en þar er algengt að setja lagaskilareglur sem hafa þann 114 Sjá [1994] 2 Lloyd's Rep. 87. 115 Sjá nánari umfjöllun um dóminn T.H.D. Struycken: „Some Dutch Judicial Reflections of the Rome Convention, Art. 4(5)“. bls. 22-23; C.G.J. Morse: „Letters of credit and the Rome Conven- tion“. Lloyd's Maritime and Commercial Law Quarterly, 1994, bls. 560 o.áfr. og Cheshire & North: Private International Law, bls. 574. 116 1 öðrum enskum dómi Crédit Lyonnais gegn New Hampshire Insurance Co [1997] 2 Lloyd's Rep., var tekið svo til orða að ákvæði 5. mgr. 4. gr. „formally makes the presumption very weak“, en segja má að þetta sé afstaða ensks rétlar til reglunnar. 168
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.