Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Page 62

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Page 62
6.3 Skilyrði þess að samningur sé neytendasamningur Akvæði 2. mgr. 5. gr. felur í sér þá reglu að neytandi skuli aldrei vera lakar settur en ófrávíkjanlegar reglur í lögum þess lands þar sem hann á heima mæla fyrir um, jafnvel þótt ákvæði um lagaval í samningi geri ráð fyrir því að lög annars lands skuli lögð til grundvallar.122 Skilyrði fyrir beitingu 2. mgr. 5. gr. er að fyrir liggi eitthvert þeirra tilvika sem um getur í a-c lið ákvæðisins. Er litið svo á að í þessum tilvikum sé þörfin á réttarvernd neytenda mest. Ef neytenda- samningur verður ekki heimfærður undir neitt þessara tilvika gilda um samning- inn almennar reglur 3. og 4. gr. Skal nú vikið að einstökum skilyrðum. Samkvæmt a-lið 2. mgr. 5. gr. á hin sérstaka neytendavemd við ef undanfari samningsins var sérstakt tilboð til neytandans eða almenn auglýsing og allar nauðsynlegar ráðstafanir til samningsgerðarinnar af hans hálfu fóru fram í því landi þar sem neytandi býr. Það er skilyrði að seljandi hafi boðið fram vöm sína til kaupanda, annað hvort með sérstöku tilboði eða auglýsingu í blöðum, útvarpi eða sjónvarpi eða á annan hátt í því landi þar sem neytandinn á heima.123 Peter Amt Nielsen telur að auglýsingar á Netinu falli undir regluna enda hafi þær alþjóðlegan tilgang.124 Þá er það skilyrði að kaupandinn hafi gert allar nauðsyn- legar ráðstafanir til undirbúnings samningsgerð í því landi þar sem hann býr. Athyglisvert er að með þessu orðalagi er komist hjá því að taka afstöðu til þess hvar samningur er gerður. Astæðan er sú að erfitt getur verið að skera úr um það hver samningsstaðurinn er í reynd enda er algengt að slíkir samningar séu gerðir með bréfaskriftum eða fjarskiptum.125 Samkvæmt b-lið 2. mgr. 5. gr. á neytendavemdin við ef gagnaðilinn, eða um- boðsmaður hans, tók við pöntun neytandans í því landi þar sem neytandi býr. Þetta skilyrði skarast nokkuð við a-lið 2. mgr. 5. gr. en getur þó haft sjálfstæða þýð- ingu.126 Hugtakið umboðsmaður tekur til allra sem koma fram í nafni seljanda.127 122 I greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 43/2000 segir að ákvæði greinarinnar tryggi neytanda vemd samkvæmt ófrávíkjanlegum reglum í því landi þar sem hann á heima. 1 enskri útgáfu Rómarsamningsins sé notað hugtakið „habitual residence". Með því sé átt við dvöl um nokkum tíma á tilteknum stað án þess þó að skilyrðum um heimilisfesti (domicil) þurfi að vera fullnægt. Sjá Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 20. 123 Sjá Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 703. Þar er einnig tekið fram að hér undir falli einstök tilboð sem seljandi kann að hafa gert viðkomandi neytanda, annað hvort fyrir tilstilli umboðsmanns eða sérstakra sölumanna, eða sérstök tilboð sem berast honum í pósti, gegnum síma eða á annan hátt. Til nánari skýringar er tekið það dæmi að seljandinn birti auglýsingu í íslensku blaði eða tímariti. Samningar sem gerðir yrðu í framhaldi af því féllu undir sérreglu greinarinnar. Ef slík auglýsing birtist í dönsku blaði, sem ætlað væri fyrir danskan markað, gæti Islendingur búsettur hér á landi ekki borið ákvæðið fyrir sig. 124 Peter Arnt Nielsen: Intemational privat- og procesret, bls. 518. 125 Alþt. 1999-2000, A-deild. bls. 703. 126 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 703. í>ar er tekið sem dæmi það tilvik þegar seljandinn, sem hefur aðsetur í öðru landi, hefur kynnt vöru sína á sýningu í því landi þar sem neytandinn býr, án þess að um auglýsingu eða tilboð sé að ræða, og neytandinn pantar á sýningarstað. 127 Mario Giuliano & Paul Lagarde: OJ 1980 C 282, bls. 23. 170
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.