Ægir - 01.06.1997, Blaðsíða 8
„Störfum í
sátt vió
umhverfió“
segir Einar Svansson
framkvæmdastjóri
Fiskiöjusamlags Húsavíkur
Á undanfórnum vikum hafa borist eftir-
tektarverðar fregnir frá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur og nýjustu tíðindin frá fyrir-
tœkinu eru kaup á einu stœrsta og öflug-
asta skipi landsins, rœkjufrystitogaranum
Pétri Jónssyni RE, jafnframt því sem Fisk-
iðjusamlagið gerði samning um kaup á
hráefni afnýjum togara Péturs Stefáns-
sonar, útgerðarmanns, nœstu þrjú árin.
Þetta kom í kjölfar fregna um ákvörðun
stjórnar Fiskiðjusamlagsins að opna
frystihúsið fyrir ferðamönnum strax í
sumar, fara með fyrirtœkið út á hluta-
bréfamarkað og kaupa nýja bolfsk-
vinnslulínu síðar á árinu.
Einar Svansson settist í stól fram-
kvœmdastjóra fyrirtœkisins síðastliðið
haust, eða um svipað leyti og sameining
Fiskiðjusamlagsins og Höfða gekk ígegn.
Hlutverk hans hefur síðan verið að undir-
búa fyrirtœkið undir nýja sókn og marka
því stefnu inn í nýja öld. Einar hefur
mikla trú á framtíð Fiskiðjusamlagsins,
segir sameininguna við Höfða lyftistöng
fyrir fyrirtœkið en sjálfum hafi honum
komið á óvart hversu rík hefð sé meðal
fólks á Húsavík fyrir sjávarútveginum og í
því Ijósi horfi hann bjartsýnn fram á veg-
inn með þetta fyrirtœki sem um árafjöld
hefur skipað sér í flokk öflugustu sjávarút-
vegsfyrirtœkja landsins.
8 ÆGIR