Ægir - 01.06.1997, Blaðsíða 19
taka svo mikið af mér. Árum saman var
ég á netum á þessum báti og fiskaði
allt upp í 130 tonn yfir árið. En svo
þegar skerðingarnar komu þá varð að
bregðast einhvern veginn við. Ekki gat
maður verið atvinnulaus."
-En er ekki aðeins að birta yfir með
auknum kvóta?
„Jú, það er óskaplega mikill munur
að fá þessa aukningu tvö ár í röð. Á
þessu tímabili fer kvótinn hjá mér úr
28 tonnum í 48 tonn og það munar
um það. Maður getur auðvitað ráðið
hversu mikill mannskapur er um borð
en ef maður er einn þá er afkoman í
lagi. En þegar fiskaðist sem mest á net-
unum þá vorum við þrír á bátnum
þannig að það má segja að maður hafi
fórnað áhöfninni fyrst þegar skerð-
ingarnar byrjuðu. En það hversu mik-
inn afla ég hafði á bak við mig
hjálpaði í úthlutuninni en þeir sem
voru einir á voru með mun minna og
fengu því minni úthlutun."
Ekki dans á rósum
Trausti segir að útgerð smábáta hafi
ekki verið auðveld undanfarin ár og
sérstaklega hafi verið gengið harkalega
af stjórnvöldum að þeim mönnum sem
voru einyrkjar á minnstu bátunum og
misstu nálægt tveimur þriðja hluta af
kvótanum. „Þetta voru menn sem
kannski voru með 30 tonn og fóru
alveg ofan í 10 tonn. Hvernig eiga
menn að lifa á þessu afla? Þetta dugar
varla fyrir nema skoðuninni á bátunum
og búið. Þessir menn hafa margir misst
það sem þeir áttu og horfa eflaust
svekktir upp á aukninguna núna. En
Hafrannsóknastofnun segir okkur að
þess sé ekki að vænta að meira verði
hægt að auka að sinni vegna þess að
sterkan árgang vanti inn í en það er
mikill munur ef hægt er að halda þeirri
aukningu sem núna er komin/' segir
Trausti og bætir við að hann þakki fyrir
að hafa ekki tekið þann kost að selja frá
sér kvóta. „Nei, ég var ákveðinn í að
selja ekki frá mér atvinnuna. Frekar
yrði ég einn á þessu en eins og ég sagði
áðan þá varð maður að henda hásetun-
um fyrir borð," segir Trausti en hann
hefur gert bát sinn út í 15 ár.
Smábátaeigendur:
Spara milljónir með
tryggingaútboði
Landssamband smábátaeigenda
aflaði í vetur tilboðs hjá bresku
tryggingafélagi í bátatryggingar
fyrir þá félagsmenn sem gætu nýtt
sér þær. All margir nýttu sér þenn-
an möguleika og samkvæmt upp-
lýsingum frá Landssambandi
smábátaeigenda ná þeir fram
verulegum sparnaði meb þessari
abgerð.
Leitað var ráðgjafar hjá trygginga-
miðlara varbandi leiðir til að lækka
tryggingar smábátanna og var niður-
staðan sú ab farin var leið ekki
ósvipuð þeirri og Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda gerði fyrir félagsmenn
sína. Tryggingafélagið sem bauð í
pakkann heitir Cox og starfar á
Llyod's markaðnum og að mati
Landssambands smábátaeigenda
getur í sumum tilfellum verið um
verulegan sparnað ab ræba og
samanlagt er sparnaðurinn reikn-
aður í milljónum.
Áframhald verður á vinnu varð-
andi tryggingamál smábátasjó-
manna því gert er ráð fyrir að afla
tilboba í slysatryggingar þeirra og
verður íslensku tryggingafélögunum
boðið að gera tilboð í þann pakka.
Væntanlega verður aflað tilboða á
næstu mánuðum.
HAGGLUNDS DRIVES
Vökvamótorar
Afl sem tekur lítið pláss. - Tengist beint á vindur eða
iðnaðarvélar. - Snúningsátak allt að 150.000 Nm.
Mótorar á lager.
Hönnum vökvakerfi. Viðgerðar og varahlutaþjónusta.
Spilverk -
Sig. Sveinbjörnsson ehf.
Skemmuvegi 8, Sími 544-5600 Fax: 544-5301
ÆGIR 1 9