Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1997, Síða 21

Ægir - 01.06.1997, Síða 21
Nokkuð dœmigerð mynd fyrir verkfallsátökin á Vestfjörðum. Baráttan var hvað sýnilegust á bryggjunum, ekki aðeins í útgerðarbœjunum á Vestfjörðum heldur víðar um landið. Hér reyna verkfallsverðir að hindra að togarinn Skutull ÍS verði leystur frá bryggju. Mynd: Halldór Sveinbjömsson verkum ab fyrirtæki hafi orbið af vib- skiptum sem farið hafi til annarra sam- keppnisfyrirtækja á landinu og þar meb megi segja ab abrir landshlutar hafi hagnast á verkfallinu vestra. Svipaba sögu sagbi Arnar Kristins- son, framkvæmdastjóri Básafells, en einmitt meðan á verkfallinu stóð komu rækjukaupendur til ísafjarðar til að taka út nýja pökkunarverksmibju á rækju og vegna verkfallsins varb Bása- fell af vibskiptum við þessa aðila. Bábir voru þeir Arnar og Ingimar á einu máli um að í svona ástandi væri ekki til neitt sem héti skilningur á markaðn- um, enda varbabi kaupendur lítið um verkfall á einum stab á landinu, svo fremi sem vara sé fáanleg á öðrum. Þannig séu lögmál markaðarins. Karitas Pálsdóttir, stjórnarmabur í Alþýbusambandi Vestfjarba, segist ekki til hlýtar kunnug vibskiptasamningum fiskvinnslufyrirtækjanna en hún er ekki trúub á að margir vibstkiptasam- ingar hafi tapast, þrátt fyrir að mikib sé úr því atriði gert. En er hún sátt nú þegar sjö vikna verkfall er að baki. „Ég er sátt að sumu leyti en ósátt að öbru. Ég er ósáttust vib ab okkar við- semjendur hafi ekki metib launamun- inn hér þannig ab þeir vildu rífa sig út og gera abeins betur vib sitt fólk. Ég geri mér samt alveg grein fyrir að þeir fá ekki hærra afurbaverð en aðrir og meb nútímatækni er sú abstöbubót minni sem Vestfirðingar nutu áður vegna nálægðar við fiskimibin. En sáttust er ég vib ab hafa sýnt að við búum yfir þreki og trú á að með hefðbundinni verkfallsleiö sé hægt að ná árangri ef menn standa saman. Ég er ánægð með hvað fólkið okkar var duglegt og stób saman. Verkfall er eina leibin til að ná fram einhverjum hækk- unum en í okkar tilfelli var eftirtekjan alltof rýr og skýringin er sú að við vor- um of fá og smá. Það er ágæt samlíking að segja að þetta sé eins og í dropatelj- ara og vib höfðum nokkra dropa," sagði Karitas. Vinnustaðasamningar í framtíðinni? I samningum á Vestfjörbum var samið um víðtækari heimildir til vinnustaba- samninga en annars stabar á landinu og flestir virbast sammála um ab þetta langa verkfall verði til þess að fyrirtæk- in fari í vaxandi mæli þá leið, ekki síst til ab komast hjá ástandi eins og þau upplifbu á vikunum sjö. Viömælendur blaðsins eru ekki á einu máli um áhrifin af verkfallinu á næstu kjarasamninga og samskipti innan verkalýðshreyfingarinnar. Sumir telja að sárin kunni að verða dýpst milli Alþýðusambands Vestfjarða og forsvarsmanna Alþýðusambands ís- lands og Verkamannasambands ís- lands. Aðrir telja að þessu kunni að vera þveröfugt farið, verkfallib á Vest- fjörbum muni fyrst og fremst vekja upp samstöðu og baráttuvilja. En þó kann að ráða miklu um þetta atriði að kjarasamningar ná fram á aldamótaár- ib 2000 og þegar þar að kemur verður ÆGIR 21

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.