Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1997, Page 28

Ægir - 01.06.1997, Page 28
Þilskipaútgerð Vestfirðinga á síðara hluta 19. aldar í fyrri grein um þilskipaútgerð í Vest- firðingafjórbungi á fyrra hluta 19. ald- ar kom fram, að um 1850 hafði útgerb þilskipa náð að festast í sessi víða um fjórðunginn, allt frá Breiðafirði og norður til ísafjarðardjúps. Nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju og sag- an rakin áfram allt til loka skútualdar á Vestfjörðum. Mest áhersla verður lögð á að skýra frá sögu þilskipaút- gerðar á ísafirði. Þar var hún langmest, ísafjörður var „skútubær", fremur en nokkur annar staður á íslandi, og út- gerðin á öðrum stöðum vestra var mun minni í sniðum og stóð skemur en á ísafirði. Isafjörður var tvímælalaust mesti þilskipaútgerðarbær landsins nánast allan síðari helming 19. aldar og hvergi mun þilskipaútgerö hafa valdið jafn miklu um vöxt kaupstabar hér á landi, né sett jafn mikinn svip á bæj- arlífið sem þar. Eins og fram kom í síðustu grein, dróst útgeröin á Isafirði nokkuð sam- an eftir andlát Jens J. Benedictsen, en um 1850 komu nýir menn fram á sjónarsviðið og þá færðist nýr kraftur í útgerðina. Fremstir í hópi þessarar ungu manna voru þeir Ásgeir Ásgeirsson, Torfi Halldórsson og Hinrik Sigurðs- son, en með tilkomu þeirra varð breyt- ing á atvinnulífinu á ísafirði. Fram til þessa hafði bærinn öðru fremur verið aðsetur danskra og hálfdanskra kaup- manna, sem höfðu verslun að aðalat- vinnu, en stunduðu útgerð til stubn- ings og til aö afla útflutningsvöru. Nú Galías „Ámi fónsson", eitt af fhitningaskipum Ásgeirsverslunar 28 ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.