Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1997, Side 42

Ægir - 01.06.1997, Side 42
Loðdýrabændur hvetja til að allt sjávarfang komi í land Töluverð umræða varð á dögunum á fundi loðdýrabænda á Sauðár- króki um nýtingu auðlinda sjávar- ins og kom á fundinum fram gangrýni á þá þróun að vinnsla fær- ist í vaxandi mæli út á sjó án þess að krafa sé gerð um að komið sé í land með fiskúrgang. Bein og fiskúr- gangur er uppistaða í fóðurfram- leiðslu fyrir loðdýrabúin og bentu AFTUR Á ÍSLANDI JMA-7000 JFV-250 JFS-80 JLN 627 Radartæki með eða án Arpa og plotti GMDSS Dýptarmælar margar gerðir Hringsónartæki Lág- og hátíðni Straumlogg Val um 3 dýpis- skala. 4 geislar á 125 khz niður á 400 m dýpi. 4 geisla dýptar- mælir FJARSKIPTABUNAÐUR INMARSAT-M JUE 200 M NCR 300 A o INMARSAT A, B, C & M NAVTEX 06 RADARSVARAR VEÐURKORTARITAR OG MÓTTAKARAR VIÐURKENNDUR BÚNAÐUR SSB, VHF0G UHF TALSTÖÐVAR LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ RAFHÚS níRÁFHUS FISKISLÓÐ 94 • REYKJAVlK • SlMI: 562 1616 • FAX 562 7366 bændurnir á aö eitt af brýnustu hagsmunamálum þeirra væri að fá sem vandaðast hráefni til fóður- framleiðslunnar - að öðrum kosti ættu þeir erfitt með að framleiða þá gæðavöru sem skinnamarkaðurinn krefðist. Umhverfis- og landbúnaðarráð- herra, Guðmundur Bjarnason, sat fund loðdýrabænda og samþykkti fundurinn eftirfarandi áskorun á stjórnvöld um þessi mál. „Fundur á loödýradegi á Sauðár- króki 5. júní 1997 samþykkir að skora á stjórnvöld að nota heimild í lögum um fullnýtingu sjávarafurba þannig að allt sjávarfang sem kemur um borð í fiskiskip á íslandsmiðum verði nýtt og ab ekki verði veittar undanþágur á nýju fiskveiðiári eða síðar." Töluverðar umræður urðu um þetta mál á fundinum og kvábu sumir fund- armanna svo fast að orði ab um um- hverfissóðaskap væri að ræða þegar ekki væri skylda ab koma með allan afla að landi. Aðrir bentu á að í fram- tíðinni kunni þetta að breytast ef litið verði þannig á að úrgangur frá vinnslu úti á sjó verði talinn mengun. í mörgum löndum hafi menn tekið upp það almenna kerfi að þeir sem mengi borgi gjald og ef slíkt verði gert hér þá muni úrgangurinn skila sér. „Umgengni okkar um auðlindina hlýtur að eiga að vera þannig ab við nýtum allt sem kemur úr sjónum. Við hljótum að verða að taka meira tillit til umhverfissjónarmiða en við höfum gert og ég er sannfærður um að í sam- félagi þjóöanna fáum vib yfir okkur þá kröfu að vib göngum þannig um auð- lindina að sómi sé að," sagði Guð- mundur Bjarnason. 42 ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.