Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 58

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 58
54 enda hafði hann stundum látið brenslulyfið liggja við heilan sólarhring(l) og beið ekki þess að samvöxtur væri kominn, en skar eða stakk áður inn í sullina, og þá var ekki að því að spyrja, hvernig fara mundi. Annars virðist Hjaltalín ekki heldur í þessu efni hafa skilið, hvernig snmvöxtur myndaðist, því að hann segir1) að ekki sje von til að kali causticum geti valdið samvexti, þar sem það uppleysi eggjahvítuefni! Hins vegar hafði Finsen tekið svo miklu ástfóstri við þessa aðferð, að það var um of. Hann leit svo á, að- brenslu- aðferðina mætti nota æfinlega þar sem ástunga gæti komið til mála, en það er bersjmilegt, að brensla er allsendis ógerleg við sulli innan rifja, en ástunga ekki. Jón Finsen lifði það, að farið var að nota skurði í 2 atrennum, en svo liafði hann einblínt á kosli brensluaðferðarinnar, að honum fanst ekki sú aðferð standa þessari nj'ju að baki. En slíkt er algengur breyskleiki. c. Skurðaraðferðir. Það verður naumast kölluð lækningaraðferð við sullum, þótt læknar endrum og eins skæru í graftarsulli, sem voru að því komnir að gera út, og voru því eins og hvert annað kjdi. Dæmi sliks íinnast bæði í útlöndum og liltölulega snemma á íslandi, einnig frá þeim tíma, er menn þektu ekki sulli i raun rjettri, en álilu að sullaungarnir hefðu orðið til eflir á í grefti. Þannig er að framan minst á frásögn Jóns Thorslensen 1840, og Gísli Hjálmarsson getur þess 18472), að það ár liafi hann skorið í 2 sulli, sem voru að gera út milli rifja. þess konar slcurðir urðu að liði, en það var ógerningur að nota skurðaraðferð við lausa sulli tneðan menn kunnu ekki sótthreinsun sára. íslensk- um læknúm verðum sjaldan gefið að sök, að þeir hafi verið of djarfir, t. d. segir Schleisner,3) að hann hafi talað við nokkra sullasjúklinga, sem læknar höfðu geíist upp við, en skottulæknar læknað síðar með skurðum, sem stundum voru hrottalegir. Þetta er gamla og nj'ja sagan um fífldirfsku fá- viskunnar, sem ekki hræðist, af því hún veit ekki hvað er að óttast. Jón Hjaltalín lætnr þess gelið, að hann liafi stundum, ef illa tæmdist gegnum áslunguhólkinn, rist út úr gatinu með hnif, og hann virðist einnig hafa skorið inn eftir brenslu áður 1) Ársskýrsfa fyrir 1868. Landsskjalasafn. 2) Ársskýrsla. Landsskjalasafn. 3) 1. c. Bls. 15.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.