Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Blaðsíða 34
30
Honum var það Ijóst, að ef tilraunir til að ala upp t.
echinococcus í hundum úr mannasullum ættu að hafa nokkurt
sönnunargildi, varð að gæta þess, að úr þessum sullum kæmust
lifandi bandormshausar niður í hundana; það máttu ekki vera
geldsullir; og ennfremur yrði, einkum í landi þar sem þessi
bandormur væri svo algengur, að gæta þess vel, að hundarnir,
sem tilraunin átti að gerast á, hefðu ekki áður getað náð i
sulli. Það varð því að taka hvolpa, sem liöfðu verið lokaðir
inni frá fæðingu, og nákvæmar gætur hafðar á undan tilraun-
inni og eftir. Við þessar tilraunir naul liann aðstoðar Jóns
Finsen á Akureyri, og alls gerðu þeir 5 tilraunir á íslandi. í 3
skifti fundust sullabandormar í hundunum þegar þeim var
lógað, í 2 skifti engir; en annað skiftið hafði þess ekki verið
gætt að sannfæra sig um það fyrirfram, hvort ekki væri um
geldsull að ræða. Þessar 3 tilraunir, sem heppnuðust, voru þó
ekki allar óaðfinnanlegar, því tveim sinnum liafði ekki verið
iyrirfram gætt að bandormsbausum í sullinum, og annað skiftið
hafði hundurinn ekki verið lokaður inni allan tímann eftir til-
raunina; var því ekki gersamlega ómögulegt, að hann kynni að
hafa náð í sulli úr skepnuin og bandormarnir stafað þaðan; en
ólíklegt var það, enda svaraði þroskastig bandormanna, sem
fundust, til þess líma, sem var liðinn frá tilrauninni. En það
var þó eftir ein tilraun, sem lieppnaðist og var að öllu leyti ó-
aðíinnanleg og allra varúðarregla gætt fyrir og eftir.
Með þessu móti hafði þó Krabbe og Finsen tekisl að sanna
að bandormshausar i mannasullum verða að t. echinococcus i
hundum.* 1)
Með því að rannsaka þessa bandorma nákvæmlega gat
Krabbe ekki fundið neinn mun á þeim og hinum algengu, sem
áður hafði verið sannað, að mynduðust úr sullum úr skepnum,
og síðan hafa allir hætt að tala um afbrigði Kúchenmeisters.
Þá voru allar aðalgáturnar ráðnar: Sullaveikin í mönnum
og skepnum orsakast af hlöðruormi. f honum myndasl band-
ormshausar. Ef þeir komast ofan í hunda, verða þeir að hand-
ormum. í handonnum þessum myndast egg. Ef eggin komast
ofan í maga og þarma á mönnum, kindum eða nautgripum,
losnar unginn úr egginu, fer út í líkamann og verður að sull.
1) Þeir Krabbe vissu ekki annað cn að þetla væri í fyrsta sinn,
sem þess konar tilraunir hefðu heppnast. Síðar kom í ljós, að Naiuiyn
i Berlin hafði fyrr á sama árinu gert sams konar tilraun og heppnast.
Siðan hafa þess konar tilraunir oft verið gerðar og tekist vel.