Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 59

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 59
55 en samvöxtur var kominn, enda segir hann að Leared hafi þólt aðfarir sínar djarllegar, og var það ekki um skör fram, eftir þessu að dæma. Það verður ekki lijá því komist að drepa á uppruna skurðaraðferðanna erlendis, áður en reynt er að rekja sögu þeirra lijer á landi. Erlendis ráku læknar sig brátt á það, hve hætlulegir reyndust skurðir lil sulla, ef þeir voru ekki vaxnir við þar sem skorið var, og Bégin, frönskum lækni, hugkvæmdist 1830’) að mynda samvöxt með því að skera inn úr ytra lífhinmublaðinu, og bíða þess, að við ertinguna af umbúðunum yxi það við innra blaðið, ulan um sullinn. Ýmsir ritliöfundar segja, að Bégin hafi ekki skorið í fyrri atrennunni nema inn að ytra lífhimnu- blaðinu, en þetta mun vera ranghermi. Hjer cr ekki unt að ná i sjálfa ritgerð hans, en áreiðanlegir höfundar segjast liafa sann- færl sig um, að hann hafi skorið inn úr ytra blaðinu. Sumir eigna Récamier þessa tilraun, þeim hinum sama, sem fann upp brensluaðferðina. Þetta var merkileg uppgötvun, en hún var ólímabær, vegna þess að menn kunnu þá ekki að varna bakle- ríum að komasl að og valda banvænni lífbimnubólgu; þelta reyndist þvi hættulegt og fjell brátt niður. Næstu tilraun til að mynda samvöxt áður skorið væri gerði Simon1 2 *), þ5?skur læknir, 1866. Hann hafði reynt Bégins aðferð, en mist sjúk- linginn, og var aðferð sú, sem hann fann upp, í því fólgin að gera tvær áslungur með stultu millibili, lála hólkana Iiggja inni nokkra daga, og skera siðan sundur holdbrúna milli þeirra. Ekki reyndist þessi aðferð vel; samvöxturinn var einalt ólraustur og varð aðferðin því ekki langæ, enda hafði hún auðvitað auk þess )7nisa ókosti, þá sem loða við allar ástungur. Simons að- ferð virðist ekki hafa verið reynd hjer á landi, en Hjaltalín getur þess (í ársskýrslu f. 1868), að sjer lítist betur á hana en brenslu, og bjTst við að reyna hana. Nokkruin árum síðar(1876) fann Volkmann, þýskur læknir, að nýju Bégins aðferð; að minsta kosli Iætur hann þess ekki getið, að liann liafi þekt hana. En þá var orðin stórmikil breyling á handlækningum; þá var Listers aðferð farin að ryðja sjer til rúms, og hún gerði það fært og skynsamlegt, sem áður hafði verið fífldirfska. Annars virðist 1) Tekið eflir Poulet: Kystes hydatiques du foie. (Revue de Chi- rurgie 1886J. Par segir, að ritgerðin eftir Bégin sje i Journal lieh- domadaire T. I. 2) Simon: Mittheilung aus der chirurgischen Station des Kranken- hauses zu Rostock. (Deutsche Klinik 1866.)

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.