Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 61

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 61
57 og lagði loks inn kera. Það er sannast að segja, að áðnr en lýsingin á aðferð Lindemanns sást á prenti, skýrði SángerL) frá einum sullskurði í einni atrennu, sem hann hafði gert, og saumað sullinn alt i kring við magálinn áður en hann risli í hann, en saumsporin Ijet hann ná alveg inn í sullhol. Þó hefur aðferðin aldrei verið kend við hann. Síðan hafa ýmsir gert til- brigði af aðferðinni, einna fyrstur Landau, sem skrifaði fyrstu ritgerð sína 1880*), en margar síðar. Ekki ber heldur lýsingum hans öllum vel saman, og virðist hann því hafa breytt til; hann segist, í fyrstu ritgerðinni, hafa farið eftir Lindemanns aðferð, en síðar hefur liann gert sjer mikið far um, að aðferðin væri kend við sig. Þetta hefir tekist að því leyti, að nú er jafn- aðarlega lífhimnurista með sullskurði í einni atrennu, og opnu holi á eftir, kölluð Lindemann-Landaus aðferð. Hann liirðir ekki um að festa j'tra lífhimnublaðið við skinnið, dregur saum- þræði gegnum sullbelginn, inn í sullholið, til að toga fram belginn smámsamari, þegar linast við úttæming gegnum áslungu; sker síðan gat á sullinn, þegar búið er að toga belginn fram, saumar barmana við skinnið, og leggur inn kera. Tilbreytingin er því ekki mikil frá hinni aðferðinni, ekki eins mikil og hjá Sánger, en sameiginlegt er það öllum, að barmarnir á belgskurðinum eru saumaðir við magálinn, en slíkt er ekki gert með Volk- manns aðferð. í þessum myndum, sem lýst hefur verið, full- nægja þær ekki þeim kröfum, sem nú eru gerðar til þess að varna því, að nokkuð úr sullinum komist inn í kviðarholið; það er auðsætt, að fram með saumnum í sullbelgnum getur vætlað vökvi, og þessi aðferð, að draga fram belg- inn, er ekki fyllilega tryggileg. En þess er að gæta, að fæstir óttuðust þá svo mjög útsæði sem síðar, og nú nota menn samfara skurði í einni atrennu aðrar varúðarreglur í þessu skyni, án þess það sjeu talin sjerstök afbrigði eða kend við neinn. Það er ekki tilgangurinn að fjölyrða á þessum stað um kosti og lesti aðferðanna eða viðhafa nákvæman samanburð í því skyni, heldur að eins að gefa stult yfirlit yfir tilbreyting- ar og framfarir. Þó má geta þess að Volkmanns aðferð er hvorttveggja í senn, vandaminni og fullt svo tr}'ggileg í höndum viðvaninga og þeirra, sem ekki eiga mikillar aðstoðar kost, 1) Sángcr: Zur operativ. Behandl. d. Abscesse und Hydatiden d. Leber., (Berl. klin. Wochenschrift 1877, No. 12.) 2) L. Landau: Zur operativen Behandlung d. Echinococcen d. Bauchhöhle. (Berl. klin. Wochenschrift 1880, No. 7.) 8

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.