Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 33
dóttir borgarstjóri. Rannveig Guðmundsdóttir. forseti Norðurlandaráðs. Sigríður
Th. Erlendsdóttir sagnfræðingur, Sigurður Blöndal, fv. skógræktarstjóri og Páll
Skúlason rektor.
Ráðstefnan hófst 13. apríl með móttöku í Hátíðasal Háskóla Islands þar sem Páll
Skúlason rektor afhjúpaði brjóstmynd af Vigdísi eftir myndlistarmanninn Erling
Jónsson. Ráðstefnunni lauk með kvöldverði í Perlunni að kvöldi afmælisdagsins
15. apríl. Setning fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíói að morgni 14. apríl að
viðstöddum ráðamönnum og fjölda innlendra og erlendra gesta. Páll Skúlason
rektor setti ráðstefnuna, en forseti íslands herra Ótafur Ragnar Grímsson flutti
opnunarræðu. Einnig flutti menntamálaráðherra frú Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir ávarp. Prófessor David Crystal ftutti fyrsta lykilfyrirlestur ráðstefnunnan To-
wards a Phitosophy of Language Diversity, og kór Kársnesskóla söng undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur.
Auk prófessors David Crystal voru eftirtaldir lykilfyrirlesarar á ráðstefnunni: Mary
Robinson. forseti (rlands 1990-1997 og mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna
1997-2002, Blandine Kriegel. prófessor og sérfræðingur í málefnum nýbúa og
ráðgjafi Jacques Chirac, forseta Frakklands. um mannréttindi og nýbúa. Shinako
Tsuchyia. þingkona í Japan. Rufus H. Yerxa. aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar (WTO), Kristín Ingólfsdóttir. rektor Háskóla Islands. og
Kristín Ástgeirsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknastofu í kynjafræðum og fv. Al-
þingismaður. Þá voru haldnar 20 málstofur þar sem á annað hundruð fræði-
manna ftuttu erindi.
Samstarf milli Hólaskóla og Háskólans
Til þess að ná sem mestum árangri í alþjóðlegri samkeppni þurfa íslenskir há-
skólar að leggja áherslu á að vinna náið saman. meðal annars með því að
samnýta kennara. sérfræðinga og aðstöðu. Með þetta að leiðartjósi undirrituðu
Stofnun fræðasetra Háskóla íslands og Háskólinn á Hólum samstarfssamning
um kennslu og rannsóknir í febrúar.
Hólaskóli og Háskóli íslands hafa haft með sér gott samstarf um árabil. Þetta
samstarf hefurtengst margháttuðum rannsóknum. m.a. verkefnum meistara- og
doktorsnema við Háskóla íslands. sem og gagnkvæmu mati á námi. Stofnun
fræðasetra er vettvangur Háskóla íslands fyrir margháttað samstarf við stofnanir.
sveitarfélög, fyrirtæki. félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni. Samning-
urinn mun greiða enn frekar fyrir virku samstarfi skólanna m.a. á sviði fiskalíf-
fræði og fiskeldis. ferðamátafræði. fornleifafræði. sagnfræði. guðfræði og hest-
afræði en aðstæður til kennslu og rannsókna á þessum sviðum eru afar góðar
hjá Hólaskóla.
Samningurinn gerir m.a. ráð fyrir því að Háskóti íslands staðsetji kennara hjá Hóla-
skóla sem taki virkan þátt í rannsóknum og kennslu. Einnig er stefnt að því að
Hólaskóli og Háskóli íslands komi á fót sameigintegum stöðum háskólakennara.
Unnið með Bandaríkjamönnum að verkefni um flugstjórn
framtíðarinnar
Dagana 22.-23. ágúst var haldinn í Reykjavík árlegur samstarfsfundur sérfræð-
ioga og vísindamanna Háskóla Islands, MIT háskólans í Boston. Bandaríkjunum
og bandarísku geimferðstofnunarinnar NASA. Háskóli (slands hefur í samstarfi
við Flugmálastjórn íslands um árabil verið frumkvöðutl í rannsóknum á ftugum-
ferðarstjórn og meðal annars þróað hugbúnað fyrir hermi sem nýtist við ýmiss
konar greiningu og prófanir. Sérfræðiþekking í flugumferðarstjórn yfir hafi er afar
mikilvæg þegar þróa á ný tölvukerfi sem flugumferðarstjórar nota við að stýra
umferð. Sú þekking sem hefur byggst upp. bæði hér á landi og í samstarfi sem
!slendingar hafa tekið þátt í á alþjóðavettvangi. hefur haft mikil áhrif á hugmynda-
smíði og nýst við prófanir.
Tækni- og skipulagsumhverfi íslenska flugstjórnunarsvæðisins gerir það að verk-
um að það er eftirsótt til prófana á nýjungum í ftugumferðarstjórnun. Slíkar próf-
anir eru nauðsynlegar vegna aukinnar umferðar. kröfu um sífellt betri þjónustu
°g framsýnna markmiða. Eitt af markmiðunum er að ná heildrænni stjórnun á
Evrópska flugumferðarsvæðinu og að nýta vel nýjungar í tæknibúnaði flugvéla,
þ m.t. eftirlits- og fjarskiptabúnaði.
Háskóli Islands hefur um nokkurt skeið átt farsælt samstarf við MIT háskólann í
Boston. Flugmálastjórn og Flugkerfi ehf. í rannsóknaverkefni sem hefur að mark-
miði að þróa og prófa nýjar aðferðir og grafíska framsetningu gagna fyrir eftirlit