Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 229
hengi. Sérstakt kennsluefni hefur verið útbúið fyrir þetta nám barnanna.
Þetta samstarf mismunandi skólastiga hefur mælst mjög vet fyrir og verið
öltum til ánægju og sóma. Verkefnisstjóri er Logi Jónsson.
Ráðstefnur og fundir
• Sjávarútvegsstofnun kom að ýmsum ráðstefnum og fundum á árinu, ýmist
með skipulagningu og undirbúningi, fundarstjórn eða flutningi erinda. Eftir-
farandi erindi voru flutt:
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur um Nordisk Arbeidsgruppe for Fisk-
eriforskning og Nordic Marine Academy á fundinum Det nordiske fisker-
isamarbejdets fællesmode. hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmanna-
höfn. 27. janúar 2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur um Nordic Marine Academy á fundi
Nordisk Arbeidsgruppe for Fiskeriforskning í Kaupmannahöfn. 28. janúar
2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur um AUÐI - Women and Economic
Growth hjá Association of Business and Professional Women. í Reykjavík. 19.
janúar 2005.
• Erindi Guðrúnar Pétursdóttur og Þorsteins Helga Steinarssonar um SHEEL
System Specifications á SHEEL 2nd Progress Meeting, í Sevilla, Spáni, 24.
janúar 2005.
• Gestaerindi Guðrúnar Pétursdóttur Frá hafdjúpum til himintungta, hjá Rót-
arýklúbbi Árbæjar í Reykjavík, 10. febrúar 2006.
• Gestaerindi Guðrúnar Pétursdóttur Hvernig hvetja má konur til dáða, Ráð-
stefna kvenna í atvinnulífinu. Reykjanesbæ, 10. febrúar2006.
• Samantekt og niðurstöður Guðrúnar Pétursdóttur á ráðstefnu Utanríkisráðu-
neytisins: ísland og Norðurslóðir. Reykjavík. 25. febrúar2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur Women Create Wealth á þingi Assoc-
iated Country Women of the World, Reykjavík. 17. maí 2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur Modern Fisheries Management and
Development, fluttur á þingi Norrænu ráðherranefndarinnar Find the Nordic
Way á Heimssýningunni í Aichi í Japan, 16. júní 2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur Making the Most of Natural Res-
ources. ftutturá þingi Norrænu ráðherranefndarinnar í sænska sendiráðinu í
Tokyo. Japan. 20. júní 2005.
• Gestafyrirlestur Guðrúnar Pétursdóttur Fisheries Management in lceland.
fluttur á mátþingi fyrir utanríkisráðherra Taiwans og fylgdarlið hans í Reykja-
vík, 1. júlí 2005.
• Innleiðandi erindi og stjórn málstofu um Viðbrögð gegn náttúruvá á Umhverf-
isþingi 18.-19. nóvember 2005.
• nnleiðandi erindi og stjórn málstofu um Internasjonalisering pá hjemmeb-
ane á þinginu Norden i verden - Verden í Norden. 21 .-22. nóvember 2005.
Útgáfa
Dagmar Sigurðardóttir: Frumvarp til laga um Landhelgisgæslu íslands. Sjávarút-
vegsstofnun HÍ. Reykjavík 2005.
Stofnun Árna Magnússonar
á íslandi
Starfsfólk og starfsemi
Starfslið stofnunarinnar var óbreytt á árinu. Forstöðumaður og aðstoðarfor-
stöðumaður sinna stjórnun og rannsóknum (40%), og skrifstofustjóri sinnir
rannsóknaþjónustu með öðrum störfum. Sjö sérfræðingar hafa 60% rannsókna-
skyldu, en auk þeirra störfuðu tveir verkefnisstjórar við rannsóknir og þjónustu
og nokkrir sérfræðingar. doktors- og meistaranemar höfðu tímabundna ráðn-
ingu til rannsóknastarfa fyrir styrkjafé. Bókavörður. forvörður, tjósmyndari og
safnkennari sinna sérhæfðum verkefnum. og þrír öryggisverðir eru í fullu starfi.
Fjárhagsleg umsvif jukust nokkuð milli ára. að hluta til vegna aukinna fjárveitinga
frá ríkinu. einkum vegna nýrra kjarasamninga. en einnig vegna rannsóknastyrkja
og aukinna tekna af sjóðum sem verja skal til bókakaupa. Framlag úr ríkissjóði
var 117 m.kr., en önnur framlög (einkum rannsóknastyrkir) og sértekjur námu
um 17 m.kr. Þá bætast við fjármunatekjur sem verja ber til bókakaupa á árinu
2006. svo að í heild urðu fjárheimildir stofnunarinnar nærri 137 m.kr.