Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 216
Rannsóknir á lífvirkum efnum í mat eru einnig stundaðar á RÍN. Enn eru að birt-
ast greinar með rannsóknaniðurstöðum sem sýna sérstöðu íslensku kúamjólkur-
innar. í verkefninu SEAFOODplus-YOUNG sem hófst árið 2004 og styrkt er af 6.
rammaáætlun Evrópusambandsins eru rannsökuð lífvirk efni í fiski. Annars vegar
er gerð íhlutandi rannsókn sem felur í sér meðferð ungra of þungra einstaklinga
og hins vegar er faraldsfræðiteg rannsókn á þungtyndi eftir fæðingu. Rannsóknin
er samstarfsverkefni fimm Evrópuþjóða og er Inga Þórsdóttir verkefnisstjóri.
Rannsóknaverkefninu ProChildren sem styrkt var af 5. rammaáætlun Evrópu-
sambandsins var lokið á árinu en í því tóku þátt yfir 10 þúsund 11 ára evrópsk
skótabörn og foreldrar þeirra. Það sýndi meðal annars að neysla ávaxta og græn-
metis er lægst hérlendis meðal Evrópuþjóðanna. að aðgengi að ávöxtum og
grænmeti heimavið er ákvarðandi þáttur um neyslu ístenskra barna af þessum
vörum og að drengir sem eru of þungir neyta minna magns af ávöxtum og græn-
meti en drengir í kjörþyngd.
Kynningarstarfsemi
Niðurstöður rannsókna RÍN voru kynntar á fjölmörgum ráðstefnum. fundum og
málstofum bæði innanlands og erlendis. Boðsfyrirlestrar voru tíðirá árinu, og
birting niðurstaðna í erlendum og innlendum tímaritum tíð eins og sjá má í Rita-
skrá Háskóla íslands 2005. Gefin var út skýrsla um sykurstuðul. sem styrkt var af
Norrænu ráðherranefndinni.
Aðstaða
Starfsemi RÍN er að hluta til á Næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss við
Eiríksgötu 29 og að hluta til í bráðabirgðahúsnæði í kjallara kvennadeildar Land-
spítata-háskótasjúkrahúss. Samþykktar hafa verið endurbætur á húsnæði efstu
(3ju) hæðar Eiríksgötu 29.
Rannsóknastofa í
ónæmisfræði
Almennt
Deildin er hluti af Rannsóknasviði Landspítalans (RLSH). Aðrar deildir þessarar
stofnunar eru: Blóðbankinn, blóðmeinafræðideild. erfða- og sameindafræðideild,
meinefnafræðideild, sýktafræðideild, veirufræðideitd og meinvefjafræðideild.
Yfirlæknar deildanna, sem eru í flestum tilvikum einnig kennarar við læknadeild,
mynda rekstrarstjórn stofnunarinnar.
Forstöðumaður ónæmisfræðideildar er Helgi Valdimarsson, prófessor og Málfríð-
ur Ásgeirsdóttir er skrifstofustjóri.
(árslok 2005 störfuðu 28 einstaklingar við deildina. þar af einn prófessor, 2 dós-
entar. 1 klínískur lektor, þrír nýdoktorar (líf- og efnafræðingar). einn aðstoðar-
læknir, fjórir líffræðingar og sex lífeindafræðingar (meinatæknar). Fimm starfs-
menn voru í námi til meistaraprófs og þrír í námi tit doktorsprófs. Skrifstofustjóri
og fulltrúi.
Doktors- og meistaranemar sem luku námi 2005
Gunnhildur Ingólfsdóttir. Regulation of immune responses to protein-conjugated
polysaccharides. Meistaraprófsvörn við læknadeitd Háskóla íslands, desember
2005. Leiðbeinandi Ingileif Jónsdóttir. dósent.
Perla Þorbjörnsdóttir. The role of the complement system in the pathogenesis of
cardiovascular disease. Meistaraprófsvörn við læknadeild Háskóla íslands. októb-
er 2005. Leiðbeinandi Guðmundur J. Arason. Ph.D. tíffræðingur.
Sædís Sævarsdóttir. Mannose binding tectin in inflammatory diseases. Doktors-
vörn við læknadeild Háskóla (slands, október2005. Leiðbeinandi Helgi Valdimars-
son. prófessor.
Þórunn Ásta Ólafsdóttir. Phenotype and function of cells of lymphoid tissues in
neonates - effect of immunization route and adjuvants. Meistaraprófsvörn við
læknadeitd Háskóla íslands, desember 2005. Leiðbeinandi Ingiteif Jónsdóttir, dós-
ent.
212