Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 262
kerfi sem við þörfnumst til þess að verða fullgildir þátttakendur í þeirri heims-
menningu vísinda. tækni og siðferðilegrar visku sem veröld nútímans kallar eftir
og krefst að verði að veruteika. eigi dagar mannkyns ekki að vera taldir fyrr en
varir. Að ekki sé minnst á tilvist lítillar þjóðar eins og okkar sem þarf á öllum sín-
um styrk að halda. eigi hún að hatda menningartegu. stjórnmálategu og efna-
hagslegu sjálfstæði sínu í samfélagi margfalt öflugri þjóða. Þess vegna er brýnni
nauðsyn en nokkru sinni fyrr á því að við hlúum að Háskóla íslands og hugsum
fyrir því hvernig hann getur vaxið og þroskast og orðið fultvaxinn. alhliða og öfl-
ugur rannsóknaháskóli í háskólasamfélagi heimsins.
Ágætu hátíðargestir!
Það hefur verið spennandi ævintýri að fá að vera í forsvari fyrir Háskóta íslands á
mikitvægu skeiði á þroskabraut hans. Fyrir það er ég óendanlega þakktátur og þá
sérstaktega fyrir það að hafa fengið að skynja þann mikla og gefandi lífskraft sem
stöðugt streymir frá nemendum og starfsfólki skólans á hverju sem gengur. Há-
skóli íslands var í upphafi hvítvoðungur í háskótasamfétagi heimsins. Nú tíkist
hann þróttmiklum ungtingi með mikinn metnað og háteita drauma.
Um leið og ég þakka ykkur, kandídatar góðir, fyrir þátt ykkar í því að móta Há-
skóla Istands. er ósk mín sú að þið leggið ykkar af mörkum svo draumar hans
megi rætast.
Páll Skúlasori:
Ræða við rektorsskipti í Hátíðasal 30. júní 2005
Forseti Islands, forsætisráðherra, menntamálaráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, frú Vigdís Finnbogadóttir. verðandi rektor, Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi
rektorar, rektorar annarra háskóla. deitdarforsetar. háskótafótk, aðrir góðir gestir.
Háskólinn er okkur háskólafólki tifandi hugsjón. Ég hef mörgum sinnum freistað
þess að lýsa þessari hugsjón í orðum og tagt mig fram um að vera henni trúr og
jarðtengja hana í daglegum störfum og ákvörðunum sem háskólakennari og rektor.
Því fer fjarri að ég telji að mér hafi tekist að gera hana að veruleika. Hugsjón er
hugmynd sem í eðti sínu verður aldrei að veruleika. vegna þess að htutverk hennar
er einmitt að varpa tjósi á veruleikann og vera tit teiðsagnar um það sem á að
verða. það sem við þráum og trúum að mestu skipti fyrir framtíðina. Gildi hennar er
því fyrst og fremst fótgið í því að segja okkur að hvaða leyti aðstæðum okkar sé
ábótavant og hvað megi betur fara. Hugsjónin lýsir upp heiminn. Hún katlar okkur
til sín, seiðir okkur og töfrar - og þess vegna eru margir á varðbergi gagnvart
áhrifamætti hugsjóna. telja þær jafnvel háskategar jarðbundinni skynsemi og til
þess eins fatlnar að leiða menn á villigötur. Þessu er ég ötdungis ósammála. Hug-
sjónir krefjast rökræðu um markmið og leiðir og þegar þær brestur þá tekur við
sérhagsmunabarátta þarsem menn láta órökstudda sannfæringu sína fyrir hinu
eða þessu ráða gerðum sínum og htusta lítt á hvað aðrir hafa að segja.
I fyrstu stefnuræðu minni, 5. september 1997, þegar ég tók við embætti rektors
sagði ég að hugsjón Háskólans ætti sér tvær hliðar. önnur væri sú að öðlast sífellt
meiri skilning á veruleikanum. hin beindist að sameiningu mannkyns í þekkingu og
skilningi á heiminum og lífinu. Og ég sagðist jafnframt efast um að þessi tvíhliða
hugsjón hefði náð að festa rætur í íslenskri menningu. „Við höfum verið." sagði ég.
„svo upptekin við að hagnýta okkur nýja tækni og vísindi við uppbyggingu þjóðfé-
lagsins að við höfum ekki haft tíma til að rækta sem skyldi undirstöðu þeirra. hina
leitandi og skapandi hugsun vísinda og fræða." Og ég hét því einu að vera trúr þeim
vilja sem vill að „Háskóli íslands fái að þroskast og dafna sem sjálfstætt vísinda- og
fræðasetur óháð duttlungum og sérhagsmunum tíðarandans."
Ég sagði síðan að meginviðfangsefnin væru af þrennum toga: I fyrsta lagi að gera
þjóðinni Ijóst að til að lifa í þessu landi þyrfti að rækta miklu betur fræðilega
hugsun, í öðru lagi að stjórnkerfi Háskólans yrði að verða skjótara til að taka á
málum. og í þriðja lagi að efla yrði samvinnu háskólafólks og bæta starfsskilyrði
þess. Og enn fremur að auka þyrfti samstarf við aðra skóla og yfirstjórn mennta-
258
mála í landinu.