Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 161
Ra u nvísi n dastof n u n
Háskólans
Raunvísindastofnun Háskólans (RH) ersjálfstæð rannsóknastofnun innan Há-
skóla íslands og starfar samkvæmt sérstökum reglum.
Stofnunin er vettvangur grunnrannsókna í raunvísindum. Um síðustu áramót voru
þar alls 27 sérfræðingar í föstum stöðum sem stunduðu sjátfstætt rannsóknir
auk 6 aðstoðarmanna. Þar fyrir utan unnu 30 verkefnaráðnir sérfræðingar við
rannsóknir og níu manna starfslið sem vann á aðalskrifstofu og annast rekstur
fasteigna. Loks var 21 nemi í framhaldsnámi við stofnunina. Eins og segir í regl-
um um Raunvísindastofnun er hún rannsóknavettvangur kennara við raunvís-
indadeild Háskóla ístands á sviðum stofnunarinnar en kennarar voru 49 um síð-
ustu áramót. Raunvísindastofnun er því einnig vettvangur rannsóknanáms deild-
arinnar í flestum greinum nema líffræði.
Raunvísindastofnun skiptist í Jarðvísindastofnun Háskólans (JH) og Eðtis-, efna-
°9 stærðfræðistofnun Háskólans (EH). Þessum stofnunum erskipt upp í stofur
sem lýst er hér að neðan.
Arið 2005 nam velta Raunvísindastofnunar 652 m.kr. sem er um 28,3% hækkun frá
fyrra ári. Um það bil helming þessarar aukningar má rekja til þess að Norræna
sldfjallastöðin var hluti RH allt árið 2005 en einungis hátft árið 2004. Annars urðu
aukin umsvif á flestum sviðum. Af veltu ársins 2005 komu 292 m.kr. af fjárveiting-
um hins opinbera. 84 m.kr. komu frá Norrænu ráðherranefndinni og 287 m.kr.
v°ru annað sjálfsaftafé frá íslenskum og erlendum rannsóknasjóðum og frá fyr-
'rtækjum.
Markmið rannsókna á Raunvísindastofnun er að afla nýrrar þekkingar, miðla
fræðilegum nýjungum og efla rannsóknir og kennstu. Niðurstöður rannsókna eru
birtar í tímaritsgreinum, bókum, skýrslum og ráðstefnuerindum. Rannsóknirá
stofnuninni eru einnig kynntar atmenningi í fyrirtestrum. Stofnunin hefur víðtækt
samstarf við aðrar inntendar og erlendar rannsóknastofnanir. Þá veitir hún fjöl-
Þætta ráðgjöf og þjónustu utan Háskólans.
Eðlisfræðistofa
Árið 2005 var eðlisfræðistofa rannsóknavettvangur níu kennara við raunvísinda-
deiid Háskólans og eins kennara við verkfræðideild auk fjögurra sérfræðinga við
Raunvísindastofnun. Þarstarfa einnig tveirtæknimenn Raunvísindastofnunar.
Rimm verkefnaráðnir sérfræðingar unnu á stofunni og einn verkefnaráðinn
teknimaður. Laun þeirra eru ýmist greidd með styrkjum úr samkeppnissjóðum
°9 fyrirtækjum eða með eftirlaunum. Stúdentar í rannsóknanámi á árinu 2005
v°ru ellefu talsins, þar af fjórir í doktorsnámi. Forstöðumaður eðlisfræðistofu var
Hafliði Pétur Gíslason, prófessor. Nöfn stofufélaga og upplýsingar um rannsókna-
Verkefni þeirra og ritsmíðar er að finna á vef eðlisfræðistofu á slóðinni
(www.raunvis.hi.is/Edlisfr/Edlisfr.html).
Árið 2005 urðu þær breytingar fyrirferðamestar að háloftadeild Raunvísindastofn-
Unar. sem um árabil var deild á jarðeðlisfræðistofu, fluttist yfir til eðlisfræðistofu.
^unnlaugur Björnsson var ráðinn forstöðumaður háloftadeildar, en hann hafði áð-
ur verið vísindamaður á eðlisfræðistofu. Háloftadeild sinnir eftir sem áður hefð-
^undnu hlutverki sínu en leggur auk þess áherslu á rannsóknir í stjarneðlisfræði.
Snorri Þorgeir Ingvarsson, fræðimaður. fluttist úr stöðu sinni á eðlisfræðistofu í
starf dósents við eðtisfræðiskor. en stofan greiðir rannsóknahluta tauna hans. Þá
*°k Kristján Leósson við stöðu vísindamanns við eðlisfræðistofu í árslok 2005.
Kr'stján Jónsson. verkfræðingur, sem hafði lengi verið verkefnaráðinn. fluttist í
starf deildarverkfræðings á stofunni um mitt ár. Þá hélt Bragi Árnason. prófessor
emerítus. skrifstofuaðstöðu sinni á eðlisfræðistofu árið 2005. Eftirtaldir meistara-
nemar sem höfðu rannsóknaaðstöðu á stofunni luku prófi árið 2005: Elías Halldór
jarnason. MS í vélaverkfræði. Jón SkírnirÁgústsson, MS í rafmagnsverkfræði og
rr>i Sigurður Ingason. MS í vélaverkfræði.
Á eðlisfræðistofu eru stundaðar grunnrannsóknir í tilraunaeðlisfræði og kenni-
e9n eðlisfræði. Á stofunni eru þrír hópar fyrirferðarmestir. Einn þeirra sinnir
rannsóknum í tilraunaeðlisfræði einkum hátæknieðlisfræði og örtækni. Annar