Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 124
aldir liðnar frá fæðingu Brynjólfs Sveinssonar. biskups í Skálholti. Af því til-
efni efndi Hugvísindastofnun. í samstarfi við ýmsar stofnanir. til ráðstefnu í
Þjóðarbókhlöðunni og í Skálholti 16.-18. september til að vekja athygli á
þessum merka manni og samtíð hans. Fyrirlesarar voru erlendir og ís-
lenskir. Enn fremur var sett upp sýning í Þjóðarbókhlöðunni um Brynjólf og
samtíð hans. Sýningin var jafnframt sett upp á þremur stöðum á lands-
byggðinni og efnt til ýmissa viðburða af því tilefni (tónleikar, fyrirlestrar.
leiksýningar).
• Hugvísindaþing - Föstudaginn 18. nóvember stóðu hugvísindadeild og Hug-
vísindastofnun, guðfræðideild og Guðfræðistofnun fyrir Hugvísindaþingi í
Aðalbyggingu Háskólans. Sérstök framkvæmdanefnd skipulagði þinghaldið
og í henni sátu Þórdís Gísladóttir, Margrét Jónsdóttir, Svavar Hrafn Svavars-
son, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Gunnþórunn Guðmundsdóttir. Guðni Elís-
son og Hjalti Hugason. Dagskrá var í gangi frá kl. 8.30-17.30, og haldin voru
um 80 erindi í 22 málstofum. Þingið var mjög vet sótt bæði af leikum og
lærðum.
Aðrir fyrirlestrar og umræður
í júní hélt Éric Palazzo, prófessor í listasögu miðalda við háskólann í Poitiers í
Frakklandi, fyrirlestur.
Haldin voru tvenn svokölluð Réttarhöld í gamla dómsalnum við Lindargötu í
samvinnu Ritsins við Fræðsludeild Þjóðleikhússins. Réttarhöldunum erætlað
að vera umræðuvettvangur um samfélag og listir og eru þau öllum opin.
Útgáfa
Stofnunin hélt áfram útgáfu Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar. en það kemur
út þrisvar á ári. Ritið nýtur æ meiri virðingar og viðurkenningar og hefur fest sig
vel í sessi. Það er þverfaglegt í eðli sínu en oft eru gefin út þemahefti. Þannig
voru útlönd þema 2. heftis 5. árgangs (2005). Ritstjórar á starfsárinu voru Svan-
hildur Óskarsdóttir og Gunnþórunn Guðmundsdóttir en í árslok lét Svanhildur af
störfum og var Ólafur Rastrick ráðinn í hennar stað.
Bókin Miðatdabörn kom út vorið 2005 í ritstjórn Ármanns Jakobssonar og Torfa
H. Tutinius. Greinarhöfundar í bókinni eru Agnes S. Arnórsdóttir, Anna Hansen.
Ármann Jakobsson. Ásdís Egilsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir. Else Mundal og
Gunnar Kartsson.
Ákveðið var að gefa fyrirtestra frá hugvísindaþingi út á rafrænu formi í sam-
vinnu við Háskólaútgáfuna. Skipuð var sérstök ritnefnd og í henni sitja Þórdís
Gísladóttir, Haraldur Bernharðsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir. Með þessu riti
er að nokkru leyti farið inn á nýjar brautir í útgáfustarfsemi stofnunarinnar og
Háskótaútgáfunnar.
Sjá www.hugvis.hi.is
Bókmenntafræðistofnun
Starf Bókmenntafræðistofnunar var btómlegt á árinu 2005. Stofnunin stóð að
tjóðaþinginu Heimur tjóðsins 23.-24. apríl 2005 sem haldið var t Odda. Samnefnt
greinasafn kom út í ágúst. Ritstjórar voru Sveinn Yngvi Egilsson. Ástráður Ey-
steinsson og Dagný Kristjánsdóttir.
Stofnunin kom að skiputagningu málstofu á ráðstefnu til heiðurs Vigdísi Finn-
bogadóttur í apríl 2005.
Dagskrá í tilefni af sjötíu ára afmæli Guðrúnar Helgadóttur. rithöfundar, var
haldin í hátíðasal Háskóla íslands hinn 29. september 2005. en Bókmennta-
fræðistofnun gaf út bókina í Guðrúnarhúsi í ritröðinni Höfundarsem geymir
fræðilegar greinar um sögur Guðrúnar. Ritstjórar voru Brynhildur Þórarinsdóttir
og Dagný Kristjánsdóttir. Bókin var samstarfsverkefni Bókmenntafræðistofnun-
ar og Eddu-forlags.
Á árinu varð Árni Bergmann, bókmenntafræðingur og kennari í almennri bók-
menntafræði, sjötugur og var þess minnst með afmælisritinu Listin að lesa.
Guðni Elísson ritstýrði.
120