Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Blaðsíða 202
b) að efla tengsl skora, deilda og stofnana Háskóla íslands og tengsl annarra ís-
lenskra rannsóknastofnana við atvinnu- og þjóðlíf á Suðurnesjum,
c) að efta, í samvinnu við rannsóknastofnanir og háskóla, rannsóknir á náttúru
Suðurnesja og á náttúru íslands. og
d) að stuðla að auknum rannsóknum á hverju því viðfangsefni, sem vert er
að sinna á Háskólasetrinu.
Háskólasetrið starfar í nánu samstarfi við Rannsóknastöðina í Sandgerði og Nátt-
úrustofu Reykjaness, sem staðsett eru í sama húsi á Garðvegi 1 í Sandgerði.
Samnýting er á húsnæði og tækjakosti.
Háskólasetur Suðurnesja tók í notkun nýtt húsnæði á árinu. Það er 110 fermetra
og á suðvesturenda hússins á Garðavegi 1 í Sandgerði. Húsnæðið skiptist í þrjár
skrifstofur og eina sameiginlega rannsóknastofu. Sandgerðisbær sá um innrétt-
ingu og afhenti bæjarstjóri Sandgerðis, Sigurður Valur Ásbjarnarson. rektor Há-
skóla íslands húsnæðið til afnota þann 14. júní 2005 í tengslum við ráðstefnu sem
Stofnun fræðasetra Háskóla íslands hélt í Sandgerði.
í Stjórn Háskólasetursins sitja Böðvar Jónsson, tilnefndur af Sambandi Sveitarfé-
laga á Suðurnesjum. Guðrún Marteinsdóttir, tilnefnd af Háskóla íslands. Jörundur
Svavarsson, formaður stjórnar, tilnefndur af Háskóla Istands, Magnús H. Guð-
jónsson. tilnefndur af sjávarútvegsráðuneyti, Rögnvaldur Ólafsson. tilnefndur af
Háskóla íslands og Sigurður Valur Ásbjarnarson, tilnefndur af Sandgerðisbæ.
Starfstið Háskólasetursins eru þeir háskótakennarar og nemendur sem aðstöðu
hafa í setrinu hverju sinni og þeir fræðimenn sem stjórn Háskótasetursins býður
starfsaðstöðu hverju sinni. Eftirfarandi kennarar og nemendur störfuðu í lengri
tíma við rannsóknir á árinu 2005 í Háskólasetrinu: Jörundur Svavarsson. prófess-
or í sjávarlíffræði, Guðmundur V. Helgason, sérfræðingur, Halldór P. Haltdórsson,
MS. doktorsnemi og Sigríður Kristinsdóttir. MS nemi (samstarf við Náttúrustofu
Reykjaness). Auk þess stunduðu Bjarnheiður Guðmundsdóttir, sérfræðingur. Sig-
ríður Guðmundsdóttir. sérfræðingur og Bryndís Björnsdóttir, doktorsnemi, Til-
raunastöð Háskóla (slands í meinafræði að Keldum, rannsóknir í tengslum við
háskólasetrið.
Rannsóknir
Rannsóknir í tengslum við Háskólasetrið tengjast einkum lífríki sjávar. Helstu
verkefni sem unnið var að innan Háskólasetursins voru:
Útbreiðsla botndýra (krabbadýra, burstaorma) á (slandsmiðum. Rannsóknirnar
voru unnar í samvinnu við Rannsóknastöðina í Sandgerði og eru hluti af hinu um-
fangsmikla rannsóknaverkefni Botndýrá Islandsmiðum. I rannsóknunum tóku
þátt þau Jörundur Svavarsson, prófessor, GuðmundurV. Helgason, sjávarlíffræð-
ingurog Ólafía Lárusdóttir, meistaranemi.
Mat á svörun lífvera gagnvart mengun með beitingu á bíómarkerum. Umtalsverð-
ar rannsóknir fóru fram á áhrifum mengandi efna á sjávarlífverur. svo sem þung-
málma og PAH sambönd. sem koma úr olíu. auk þess sem rannsóknir fóru fram
á eiturefnum. sem til greina koma í framtíðinni sem virk efni í botnmálningu
skipa. I rannsóknunum tóku þátt þeir Halldór P. Halldórsson, doktorsnemi og Jör-
undur Svavarsson auk þeirra Áke Granmo og Anneli Hilvarsen. Kristinebergs-
sjávarrannsóknastöðinni. Svíþjóð.
Fæða hákarlsins (Somniosus microcephalus). Nýlega hófst rannsóknarverkefni
sem beinist að því að kanna á hverju hákarlinn lifir. Kannaður hefur verið fjöldi
magasýna, sem aflað hefur verið í samvinnu við Hildibrand Bjarnason í Bjarnar-
höfn. Verkefnið er unnið í samvinnu við prófessor Aaron Fisk, Warnell School of
Forest Resources, Georgíu, Bandaríkjunum.
I tengslum við verkefnið dvaldist Baitey McMeans. meistaranemi við Háskólann í
Georgíu. við Háskótasetrið í ágúst. Með aðstoð frá Fiskmarkaði Suðurnesja í
Sandgerði var unnt að afla sýna af algengustu fisktegundum. sem koma fyrir í
maga hákarlsins. Markmið rannsóknanna var að kanna stöðugar samsætur (sta-
ble isotopes) níturs og kolefnis og bera þær saman við samsætur sem finnast í
vef hákarlsins.
Halldóra Skarphéðinsdóttir og Birgitta Liewenborg, ITM, háskólanum í Stokk-
hólmi, dvöldust í lok september og fyrstu viku í október í Háskólasetrinu við rann-
sóknir á DNA viðbætum (DNA adducts). Þessar viðbætur myndast þegar PAH
198