Búnaðarrit - 01.01.1891, Page 40
36
efni á hverjum stað og tíma; verðlagið breytist, sveit-
irnar eru mismunandi, jarðirnar í hverri sveit hver
annari ólíkar, og auk þessa er margt annað, sem getur
valdið því, að sitt reynist hverjum.
Þegar reikna skal, hvað menn fá fyrir hey það, er
geíið er kúm og kindum, þá má fara eptir því, sem á-
líta má að almennt eigi sjerstað; þetta liefur þann kost,
að það getur, ef rjett er metið, átt sem víðast við; en
á hinn bóginn verða menn þá að setja margt að eins
eptir ágizkun, og er þá eigi að vita, hversu mikið það
kann að mismuna frá því, sem í raun og veru á sjer
stað. Jeg vil því sleppa því, en taka að eins fram það,
sem mjer sjálfum reyndist, þau fáu ár, sem jeg hafði
nokkurnveginn áreiðanlegar athuganir á að byggja, í
þeirri von, að það geti, þó nokkuð langt sje síðan liðið,
sumpart verið til hliðsjónar, þar sem líkt stendur á, og
sumpart gefið tilefni tii sjálfstæðra athugana, þar sem
ástæðurnar eru aðrar, þeim sem eigi hefðu áður aðgætt
þetta. Jeg vil geta þess, að ábýlisjörð mín hafði liægt
en Ijett beitiland; það eru mýrar hagasamar á vetrum;
kvistur er enginn en allgrösugt; lieyfall af engjum er
gott, og afrjett allgóð. Sá tími er athuganir mínar
náðu yfir, var frá því haustið 1875 til haustsins 1879;
þau ár voru öll hjer um bil meðalár; árið 1876 nokkru
betur, en 1877 aptur nokkru miður.
VerS á töðu get jeg eigi sagt um, nema eptir því,
hvernig kýrnar borguðu hana, því liún var að heita mátti
öll gefin kúm; jeg hafði ýmist 4 eða 5 kýr, og var
hverri kú gefið sem næst 600 fjórðungar af töðu á ári
að meðaltali, en að meðaltali mjólkuðu þær rjett um 2500
potta á ári. Fyrir utan fóðrið er ýmislegur annar kostn-
aður við kúna, og má þar til telja rentur af verði henn-
ar, rýrnun á kúnni með aldri, áhætta við að missa