Hugur - 01.01.1992, Page 38
36
Bryan Magee
HUGUR
Sumar af vanrœktum uppgötvunum þínum í stjórnmálaheimspeki
hafa aðrir enduruppgötvað á eigin spýtur. Til dæmis að taka er Djilas
sem hafði verið einn af framámönnum í kommúnistaheiminum. Hann
setti fram í riti sínu Hin nýja stétt, sem nú er orðið klassískt,
hugmyndir sem þú hafðir hirt löngu áður í Opna þjóðfélaginu. Og
aftur útlistar síðasta bók hans Ófullkomna þjóðfélagið í löngu og
ítarlegu máli setninguna: Það er skoðun mín að þjóðfélag geti ekki
veriðfullkomið. Hann álítur nú að sú hugmynd að þjóðfélag geti verið
fullkomið sé kórvillan hjá kommúnistum.
Ég hygg að þú hafir á réttu að standa um Djilas: Hann hefur á
löngum þjáningar- og fangavistarárum komist að skoðunum sem aðrir
komust að með gagnrýnni hugsun. Einhvern veginn finnast mér
niðurstöður hans tilkomumeiri og dýrmætari.
En við erum nú vitni að greinilegri endurvakningu áhuga meðal
gáfaðs œskufólks einmitt á þeim höfundum og kenningum sem þú
heindir spjótum þínum gegn: Hegel, Marx, sálgreiningu, tilvistar-
stefnu. Hver er skýring þín á þessu?
Það hefur alltaf verið tilhneiging til að svipast um eftir visku-
steininum — einhverri allrameinabót. Núverandi ástand telst tæplega
til nýjunga — nema hvað skynsemi í umræðum hefur raunalega
hrakað. Það stafar sumpart af því að fólki finnst að of mikið hafi verið
talað og það hafi ekki leitt til neins. Það er því ekki lengur í tísku að
rökræða við andstæðinginn. Menn reyna ekki lengur að komast að því
hvað sé bogið við rökfærslu andstæðingsins. Menn kyngja einhverri
tilkomumikilli kenningu í heilu lagi. Þetta er skiljanleg tilhneiging en
hörmuleg ef hún verður sérkenni ungra menntamanna. Hún sýnir að
vitsmunalegum gæðakröfum og vitsmunalegri ábyrgð hefur hrakað.
Dæmi um hugsunarleysi þessarar tegundar andrökhyggju er núverandi
stjórnleysistíska. Vissulega ættum við að standa gegn aukningu
skrifræðis og vexti ríkisvaldsins. En mér er fyrirmunað að skilja að
sama fólkið og hlýtur að gera sér grein fyrir að stjórnleysi á
alþjóðavettvangi þýðir kjarnorkustríð, geti trúað því að unnt sé að búa
við stjómleysi innanlands án þess að flækjast í kjamorkustríð.
Þó að þú hafir ekki gefið út bók í nokkur ár þá hefurðu stöðugt
verið að skrifa greinar, ritgerðir, fyrirlestra o.s.frv. Hvað hefurðu
einkum verið aðfást við nú í seinni tíð?