Hugur - 01.01.1992, Page 66
64
Atli Harðarson
HUGUR
Menntaskólinn á Akureyri er líka eini skólinn þar sem boðið er upp á
4 mismunandi áfanga í heimspeki: Þá þrjá sem þegar eru taldir og
valáfanga fyrir nemendur á fyrsta ári.
*
Námsefnið í heimspeki við þessa 13 skóla er æði sundurleitt. Við
tvo þeirra, Fjölbrautaskólann við Ármúla og Verkmenntaskólann á
Akureyri er aðeins kennd siðfræði fyrir fólk sem er að búa sig undir
störf í heilbrigðiskerfinu. Við tvo þeirra eru áfangar þar sem nær
eingöngu eru lesin rit eftir Platón. Þessir tveir skólar eru Mennta-
skólinn í Reykjavík og Menntaskólinn að Laugarvatni. Við Mennta-
skólann í Reykjavík er auk þess valáfangi í heimspeki þar sem farið er
í önnur efni en fomaldarheimspeki.
Ætli heimspeki við menntaskólana í Reykjavík og á Laugarvatni
annars vegar og við Fjölbrautaskólann í Ármúla og Verkmennta-
skólann á Akureyri hins vegar eigi mikið sameiginlegt nema nafnið?
— Kannski ekki einu sinni það, því í Ármúlanum er þessi áfangi
kallaður siðfræði, en ekki heimspeki og þegar ég spurði Ármýlinga
hver kenndi heimspeki þar á bæ var mér svarað að það gerði enginn.
En þótt námsefnið sé sundurleitt ber mest á viðfangsefnum úr forn-
aldarheimspeki og siðfræði.
Við fimm skóla eru rit eftir Platón lesin í valáfanga í heimspeki.
(Þessir skólar eru: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn á
Sauðárkróki. Menntaskólinn á Egilsstöðum, Menntaskólinn að
Laugarvatni og Menntaskólinn við Sund). Auk þess er lögð áhersla á
fornaldarheimspeki í valáfanga við þann sjötta (Menntaskólann á
ísafirði), og við a.m.k. tvo skóla til hafa rit eftir Platón verið notuð
undanfarin ár (Fjölbrautaskóla Vesturlands og Fjölbrautaskólann í
Garðabæ). Við Menntaskólann í Reykjavík er svo áfangi í heimspeki
Platóns á fornmálabraut I. Af þessu má ætla að heimspekikennsla við
um helming þeirra 13 skóla sem um ræðir snúist að verulegu leyti um
kenningar þeirra Sókratesar og Platóns.
Af samræðum við heimspekikennara þykist ég hafa komist að því
að þeir leggja flestir meiri áherslu á að kenna siðfræði heldur en til
dæmis frumspeki, fagurfræði eða rökfræði. Frá þessu eru þó undan-
tekningar: Við Menntaskólann á Akureyri er t.d. áfangi í rökfræði; við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er farið í Þrœtubókarkorn eftir