Hugur - 01.01.1995, Blaðsíða 12
10
W. V. Quine
HUGUR
handbók fyrir túlkun. Og vissulega gegnir svipuðu máli um hvaða
einsmálsorðabók sem er.
Þótt túlkun sé víðari en þýðing eru aðferðirnar svipaðar.
Upplýsingarnar sem hvor tveggja veltur á eru sýnileg hegðun í sýni-
legum aðstæðum, og í báðum tilvikum er mælikvarðinn á árangur
lipurð samræðna og árangur í sáttum.
Það er rétt hjá Davidson að skoða almenna túlkun frekar en einbera
þýðingu, þar sem hann er að fást við merkingarfræði eða kenningu
um tjáningu í tungumáli. Greining mín á róttækri þýðingu, sem var
ímynduð tilraun, hafði þrengri tilgang; ég var að bjóða þeirri
hugmynd birginn að merking setningar væri inntak hennar. Þýðingar-
brigðin þýddu að þótt setningar hefðu samsvarandi merkingu væru
ekki endilega jafngildisvensl milli þeirra, og þar með féll hugmyndin
um aðgreinanlegar yrðingar; og enginn hlutur er án aðgreiningar, án
samsemdar.
í aðferðafræði Davidsons er eitt atriði sem ég hef efasemdir um,
nefnilega sú meginregla að gera sanngildi þess sem innfæddir segja
sem mest. Ég vil gera sem mest úr líkindunum fyrir því að einhver
hafi tilteknar hugmyndir frekar en úr sannleika þessara hugmynda. í
ljósi framandi helgisiða og banna meðal innfæddra, geta augljós
rangindi þess sem þeir segja stundum verið líklegri túlkun en
sannleikurinn. En burtséð frá slíkri hegðun og sviðum þar sem gera
má ráð fyrir að innfæddir séu óupplýstir, er vinnureglan sú að þeir
hugsi eins og við, og því beri yfirleitt að túlka orð þeirra eins og þau
væru sönn í okkar augum.
Sannleikurinn er einnig með öðrum hætti grundvallaratriði í kenn-
ingu Davidsons; hjá honum eru T-setningar í anda Tarskis burðarás
túlkunar. Ég fagnaði þessum leik hjá Davidson strax í upphafi árið
1966.3 Þetta er snyrtilegt tilbrigði við aðferð Tarskis. Tarski gaf sér
túlkun setninga sem grunn undir skilgreiningu á sannleika; Davidson
gefur sér sannleikann sem grunn undir túlkun setninga.
Annar aðdáunarverður kostur á kenningu Davidsons um túlkun er
samspil trúar og löngunar. í atferli verður hvorki trú né löngun
sýnileg, heldur óskiptur árangur þeirra beggja; það er svo verkefni
fyrir kenningar og getgátur að greina þetta að.
3 Donald Davidson: „Truth and Meaning" (abstract), Journal of Philosophy, Vol
63, bls. 586-587.