Búnaðarrit - 01.01.1922, Qupperneq 11
BÚNAÐARRIT
ð
strand, en tæplega eins þægilegar í notkun. Stungukvísl
frá W. Hunt mjög vönduð að smíði, en full-þung.
Höggkvislar frá Chr. Olsen, Marstrand og Dansk
Staalindustrie. Sterkust virðist sú frá Marstrand, en sú
írá Olsen liprari. — Höggkvíslar eru ágæt áhöld t.il að
hreykja með upp að kartöflum.
Garðhrífur teljum vjer bestar frá Chr. Olsen. —>
Plöntuskeiðar bestar frá W. Hunt, þar næst frá Olsen.
— Arfasköfur sjerstaklega góðar frá Brödrene Brincker;
þær eru mjög þægilegar i notkun vegna þess hvað blaðið
er mjótt; en mjóblaðaðar sköfur eru aftur á móti ekki
eins góðar til hreykingar og þær breiðblöðuðu.
Garðklórur bestar frá Herm. Raffel og þar næst frá
Chr. Olsen (báðar amerískar). Þær frá Brödrene Brincker
og Th. Scott jafnast tæplega á við þær fyrnefndu; tind-
arnir í þeim eru heldur þjettir.
Kartöfluskófla frá Chr. Olsen (amerísk), mjög vel gerð;
sjerstaklega hentugt áhald til að moka með kartöflum,
þar sem mikið er af þeim. — Rófnasáðvjelin frá Fáborg
er ágætt og nauðsynlegt áhald, þar sem rófnarækt er
mikíl.
Mykjukvíslar og raðhreinsara látum við óumtalaða,
þar sem dómneínd jarðyrkjuáhalda hefir athugað þá.
En hentugur fyrir garða er raðhreinsari (fjölyrki) fyrir
handafl, frá Ernst, Seifert, og má einnig nota hann sem
hlúplóg.
Garðkönnur frá Chr. Olsen eru mjög góðar, hin minni
sjerstaklega heppileg til að vökva með í vermireitum.
Skrúðgarða-uppdrættir Guðrúnar Björnsdóttur gefa
góðar bendingar um það, hversu haga megi skrúð-
görðum.
Reykjavik, 1. ágúst 1921.
Einar Helgason. Ragnar Ásgeirsson. M. Stefánsson.