Búnaðarrit - 01.01.1922, Blaðsíða 19
BTÍN AÐ Aft RIT
13
á kl.st,., eða nokkuð meira en tiltekið er frá verksmiðj-
unni. Snúningshraði sveifarinnar er um 45 umferðir á
mínútu, og skilvindan er óvenju snúningsljett og gang-
urinn hijóðlítill og jafn. Nokkur galli er það á skilvind-
unni, að hætt er við að skrúfugangurinn í efri enda
sogpelans skemmist, nema gætilega sje með hann farið;
auk þess mun sporið, sem styður neðri hluta pelans,
slitna fremur fljótt, en kostnaðarlítið er að gera ný spor,
og má vel nota trje í þau. Snúningskerfið í skilvindunni
er í þar til gerðri olíulaug, og er því óþarft að bera á
hana oftar en einu sinni á mánuði, eða jafnvel sjaldnar.
Skilvindan nær vel feitinni úr mjólkinni, eins og sjá má
á feitikönnunar-töflunni. — Útsöluverð er Kr. 325,00.
„Sylvia“, sýnd og seld af Árna Einarssyni í
Reykjavík. — Skilvindan er sterkbygð, en dálítið óvand-
aður frágangur á henni. Rjómaskálin nam t. d. við hið
innilukta hringþynnukerfi, en það gerði gang skilvind-
unnar óstöðugan og erfiðan. Eftir að gert var við þenna
galla, var skilvindan reynd; hún skildi 135 h'tra á kl.st,.,
og er það fyllilega eins mikið og gefið er upp af verk-
smiðjunni. Snúningshraði sveifarinnar er um 60 um-
ferðir á mínútu, en samt var talsvert erfitt að snúa
skilvindunni. Borið er á skilvinduna í 6 stöðum. Hreins-
un og samsetning er nokkuð seinleg, eins og þegar er
sagt um hringþynnukerfið. Skilvindan skilur ekki rjett
vel, eins og feitikönnunar-taflan ber með sjer. —
Útsöluverð er Kr. 190,00.
„Alexandra“ (Titan A.-B.), sýnd og seld af Stefáni
Th. Jónssyni, konsúl á Seyðisfirði. — Skilvindan er
sterkleg og gerðin einföld. í henni er hið einfalda jafn-
vægis-bollakerfi. Gangurinn er talsvert hávær, en fremur
jafn. Hraði á sveifinni er um 72 umferðir á mínútu, og
er því all-þreytandi að snúa skilvindunni til iengdar.