Búnaðarrit - 01.01.1922, Qupperneq 37
BUNAÐ ARftlT
31
°g til hliða. Millibil hleðslunnax*, dýpt og stærð, verður
að haga eftir jarðveginum og stærð skurðanna.
Sje um mjög breiða skurði að ræða, má setja 2 raðir
með dinamil og sprengja í einu. Með þessari aðfeið veit
jeg til að hafa verið sprengdir 175 m. langir skurðir,
með einni kveykingu. — Tilraunir í Noregi hafa sýnt
að 100 gramma hleðslur, með 40 cm. millibili, settar
35 cm. niður (neðri brún) hafa sprengt ca. 2 m. breiðan
og 1 m. djúpan skurð.
„Oröftedinamit" var reynt í Vatnsmýrinni, skamt frá
Gróðrarstöðinni. Mýrin var mjög rotin og laus í sjer.
Þar heppnaðist sprengingin ekki vel, að eins nokkur
hluti skurðlengdarinnar, sem sett var niður í, sprakk
við fyrstu kveykingu. Orsökin var, að líkindum, að
sumar dinamit-patrónurnar hafa verið skemdar. — Á
Vífilsstöðum var sprengdur 10 m. skurður með einni
kveykingu. Breiddin varð ca. 2 m. og dýptin 80 cm.
Hleðslurnar voru 100 grömm, með 40 cm. millibili.
Þessar litlu tilraunir sýna ekki annað en það, að
skurðsprenging getur heppnast hjer í mýrum. — Til-
raunir með hleðslustærð og millibil þarf að gera i mis-
munandi mýrarjarðvegi, áður en sagt verður frekar um
þetta. Einkum væri fróðlegt að vita, hvernig aðferðin
reyndist í ristu-mýrum. — Verð á „Gröftedinamit" er
nú á skipsfjöl í Björgvin kr. 3,50 kg.
„Gröftedinamit" og „Sjernedinamit“ er viðkvæmt og
hættulegt, eins og venjulegt dinamit, og sömu reglur
8úda um flutning á því. — „Landbruks Sikrit“ er ör-
yggis-sprengiefni, algerlega hættulaust í flutningi og allri
tteðferð.
1» ú n h r c i ii s u im r v j o I ii r.
Vjel smiðuð af Guðmundi Davíðssyni á
Hraunum, eftir hans eigin uppfynding. — Aðal-hluti
vjelarinnar er alt-víður sívalningur úr plægðum stöfum,
weð sljettum göflum á báðum endum. Innan í ca. hálfan