Búnaðarrit - 01.01.1922, Síða 38
32
BUNAÐARRIT
aívalninginn eru negldir þrístrendir trjerimlar. Ás liggur
milli gafla sívalningsins, meö tveimur spjöldum út úr,
sem ná út qndir rimlana innan í honum. Á litlum
hluta sívalningsins er op langs eftir, og þar í strengdur
vír milli gaflanna, með dálitlu millibili (rifum á milli),
og veit sá hluti hans niður. Undir sívalningnum er
kassi, sem hann fellur dálítið ofan í og hurð á honum.
’Ofan á sívalningnum er annar kassi með vinduhliðum,
svo loft geti streymt gegnum hann, og er op með
hleypiloki fyrir milli hans og sívalningsins. Á gafli sí-
valningsins er einnig op með hleypiloki.
Þegar hreinsað er í vjelinni, er spjaldinu snúið með
vatnsafli eða öðru fáanlegu afli. Hleypilokið á gaflinum
er dregið frá, og dúnninn látinn sogast þar inn í sivaln-
inginn. Yjelin er látin velta tuggunni í 3—5 mínútur,
síðan er lokið ofan á vjelinni dregið frá, og skilar hún
þá dún-tuggunni upp i kassann. Úrgangurinn lendir ofan
um rifurnar í neðri kassann. — Hreinsunin byggist á
miðflótta-afli og núningi milli spjaldsins og vindanna
innan í sívalningnum.
2. Yjelin er smíðuð af Sigurði Egilssy'ni á
Laxamýri, og gildir, í höfuðatriðum, sama lýsing á
henni og þeirri fyrri, þvi hún er smíðuð eftir vjel hjá
Guðmundi á Hraunum. Helsti munur á henni og þeirri
fyrnefndu er í fyrsta lagi sá, að þessi er nær því helm-
ingi stærri, eða eins og G. D. hafði þá fyrstu, sem
hann smíðaði. í öðru lagi eru trjerenningar í botninum,
í staðinn fyrir vír í hinui, og er það gert til þess, að
rifurnar verði jafn breiðari, og þrengri, svo minna fari
niður af dún við hreinsunina; en við það verður vjelin
heldur seinvirkari. í þriðja lagi er dálítil trekt á gafli
vjelarinnar, þar sem dúnninn er látinn inn í hana, og
það op nær miðju sívalningsins, og er því öllu auðveld-
ara að láta dúninn í hana. í fjórða lagi er akúffa undir
öllum kassanum, sem ruslið fer ofan í, og er hægt að