Búnaðarrit - 01.01.1922, Side 39
BtTNA.DA.RRIT
33
^i'aga hana út. í fimta lagi er öllu vandaöra smíöi á
Þeasari vjel.
Vjelar þessar gera dúnhreinsunina mörgum sinnum
auöveldari en með eldri aöferöum, þannig að unglingar
geta hæglega unnið verkið, auk þess sem þær fyrir-
t>yggja að mestu þá óhollustu, sem dúnhreinsuninni
fylgdi. — í þeim má hreinsa af vel þurkuðum dún um
6—9 kg. á dag (ef til vill meira), en þá þarf að yfir-
fara hann (rífa dúninn) á handgrind á eftir, og er mjög
Ijett fyrir 1 mann að hafa á eftir vjelinni.
3. Vjel smíðuð af AntoníusBjörnssyni, Hof-
felli í Hornafirði. — Hún er þannig gerð, að línuás er
strengdur í hálfhringlagaðann kassa, með ca. 2 cm.
millibili, og er all-langt bil milli strengjanna og kassa-
botnsins. Milli gafla kassans er ás, og á honum margir
armar, með kvíslum á endunum, gerðum úr hvalskíði,
og nema kvíslar þessar að strengjunum, þá snúið er
með handfangi á öðrum enda ássins. Lok á hjörum er
yfir kassanum, og er dúnvisk látin á strengina, sveifinni
snúið, uns viskin er hreinsuð með kvíslunum. Kassinn
þá opnaður og viskin verkuð af strengjunum.
Sandgræðsln-sýning
6Tu nnlaugs Kristmundssonnar vakti mikla
eftirtekt á sýningunni. Sýndi hann ljóslega öll þroska-
stig melgrassins hins þjóðnýta, enda er hann því manna
kunnugastur hjer á landi, svo og öllu því er að sand-
græðslu lýtur.
Þar eð margir sýningargestir voru sjerlega spurulir
við Gunnlaug, og það þótti mörgum — einkum Norð-
lendingum — hollvænt en nýstárlegt, að hægt væri að
fá melfræ árlega, og ábyggilega tilsögn, hvernig með
skuli fara, eru hjer prentuð nokkur ummæli Gunnlaugs
um melgrasið til þeirra mörgu, sem eigi náðu tali
hans, en hafa vaknandi áhuga á sandgræðslu.
3