Búnaðarrit - 01.01.1922, Blaðsíða 47
BÚNAÐARRIT
41
alla sýningarmuni. Á það miklar þakkir skilið fyrir þetta.
En lögregla og stjórn tók ríflegan skerf í innflutnings- og
stimpilgjaldi (nær 600 kr.)
Útlit þófna- j>að má segja að þúfnabaninn sje stór fjór-
bnnans. hjólaður vagn. Framhjólin eru lítil og með
stýrisútbúnaði má sveigja þau til beggja handa
og stýra á þann hátt. Aíturhjólin eru stór og geta auð-
veldlega oltið yflr þýfi. Aflvjelin er í vagninum, sem er
á milli hjólásanna og nær aftur fyrir þá. Þungi hennar
hvíiir á hjólásunum. Við aflvjelina er tengdur sívalningur.
Á endum hans eru tvö minni hjól. Aflvjelin snýr þessum
sívalningi, en á hann eru íestir hnifar eða önnur verk-
færi, sem ætluð eru til að tæta jarðveginn í sundur.
Þúfnabaninn með öllum útbúnaði til þess að vinna í
mýrum eða í holtum vegur 6,6 smálestir.
Til þess að gefa gleggri hugmynd um útlit og gerð
þúfnabanans skal tekið fram:
öll vjelin er næsta margbrotin eins og gefur að skilja
þar sem hún er samsett af nær 3500 smærri og stærri
hlutum, sem allir hafa sina þýðingu, og er meistaralega
fyrir komið þannig, að styrkle'ki aflvjelarinnar komi að
sem beztum notum. Vjer ætlum oss eigi að fara að lýsa
hinum einstöku hlutum, enda yrði það heil bók ef svo
væri gert, en aðalhlutar vjelarinnar eru:
Aflvjelln. Aflvjelin eða mótorinn er með líkri gerð og
venjulegir mótorar. Hún hefir 80 hestöfl og
snýst 800 snúninga á minútu. Aflið er haft svo mikið
til þess að vjelinni verði eigi aflfátt þó henni sje beitt á
land, sem erfitt er að komast yfir, enda má fullyrða að
vjelin hafi nægilegt afl til þess að komast yflr alt þýfi
hjer á landi að undanskildum smáblettum stórþýfðum,
sem eru hjer og hvar. Mótorinn er þannig útbúinn að
Þurfi hann eigi að nota alt sitt afl, þá er einnig hægt
að minka eldsneytið. Til eldsneytis er notað bensín. Afl-