Búnaðarrit - 01.01.1922, Qupperneq 53
BtiNAÐARRIT
47
2) Brotnaöi hald á öxulenda (D 2013). Smíðagalli var á
þessu og var gert að því hjer í Reykjavik, því eng-
inn varahluti fylgdi. Líkar bilanir urðu tvívegis aftur
og var gert við þær hjer og hafa dugað síðan. Hinar
nefndu bilanir standa allar í sambandi við stýrisút-
búnaðinn á vjelinni, sem auðsjáanlega orsakast af því
að erfiðara er aö stýra henni á þýfl en sljettu landi.
Þessa hluta, sem brotnuðu er hægt að styrkja án
mikils kostnaðar. Þess ber líka að geta að með breið-
um framhjólum (80 cm.) er erfitt að stýra vjelinni í
þýfi og reynir þá mikið á stýrisútbúnaðinn. Eftir að
framhjólin voru mjókkuð (45 cm.) bilaði stýrisútbún-
aðurinn eigi og virðist því að aðalorsök bilananna
hafi verið hin breiðu framhjól.
3) Útbúnaður sá, er tætarinn hvílir á, bilaði eitt einn.
Það var í mógrafa landi og orsökin að líkindum sú,
að tætarinn hefir orðið fyrir of miklum vindingi og
hliðarbeygjum. Yið þetta var gert hjer enda auðvelt
að gera þann útbúnað sterkari
4) Á aflflutningstækjum vjelarinnar bilaði eitt sinn arm-
ur (D 924), auðvelt var að gera að honum, en til
þess að geta gert það þurfti að taka vjelina mikið í
sundur. Það tók langan tíma en var lærdómsríkt fyrir
þá, sem voru að læra meðferð vjelarinnar. Auk þessa
urðu nokkrar smábilanir á vjelinni, var gert við þær
allar jafnharðan, annaðhvort með nýjum varahlutum
sem til voru, eða þeir voru smíðaðir. Allmargir hnífar
brotnuðu í sumar af vjelinni, á þessu er ætíð hætta
ef hnifarnir lenda á stórum steinum. Þarf því að
rannsaka svæðið áður en unnið er og hreinsa burtu
alt stórt grjót eða merkja við það, sem eigi er sýni-
legt.
Eins og sjest af útdrætti þessum urðu bilanirnar nokkr-
ar á vjelinni í sumar. Stafa sumar beint af smíðisgalla
frá. verksmiðjunni, og þeim ber hún ábyrgð á. Aðrar