Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1922, Page 62

Búnaðarrit - 01.01.1922, Page 62
56 BUNAÐARRIT hugsanlegt, að nobkur hluti þess sje eins mikils viiði og því sem áveitu-kostnaðurinn nemur. — Yerður nánar vikið að því síðar. Þá kemst Thalbitzer að raun um, að hallinn á áveitu- svæðinu er þetta að jafnaði frá 1 : 500—1 : 800. Eftir því er hægt að gera sjer grein fyrir því, hvernig hagar til með uppistöðu-garða og framiæslu alment. Hann gerir helst ráð fyrir því, að verkið verði boðið út, helst í heilu lagi — því annars verði landsstjórnin sjálf að stjórna því — en það álítur hann ekki eins affarasælt. Eins og að líkindum lætur, varð Thalbitzer ekki svo kunnugur hjerlendum búnaðarháttum, að hann gæti geftð rökstutt. álit um tilhögun og væntanlegan hag af áveitunni — enda mun honum hafa verið það ljóst sjalfum. Af persónulegri viðkynning við hann vitum við, að hann áleit það og utan við verkahring sinn, að gera út um, hvernig áveituna skuli reka og hvers megi af henni vænta. Hann gerir því enga tilraun til þess, að gera grein fyrir því, hve arðberandi fyrirtækið geti orð- ið — enda þótt hann sje maður mjög vanur undirbún- ingi jarðyrkju-fyrirtækja. Vöntun þessari hugði Thalbitser að bæta úr, er hann undirbjó Miklavatnsmýrar-áveituna 1910, víst að undir- lagi Búnaðarfjelags íslands. Hún átti að sýna það í verki, hvers vænta má af Flóaáveitunni. Því miður urðu á henni mistök í fyrstu, eins og kunnugt er, sem tafði fyrir árangri hennar. En það, sem nærri því verra var, Henni hefir verið of litill gaumur gefinn, sem tilraun. Líklegt er þó að hægt væri að fá nokkra vitneskju um árangur hennar, sem að gagni megi koma, þó þess væri ekki leitað fyr en nú. En sem stendur er okkur ókunn- ugt um, að nokkrar skýrslur sjeu til, sem um hana fjalla. Og síðastliðið sumar mun gagn af henni hafa rýrnað fyrir tómlæti áveitu-bændanna, vanhirðu á við- haldi skurða.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.