Búnaðarrit - 01.08.1922, Síða 4
2
BÚNAÐARRIT
kjötið reynist misjafnlega verkað, en það spilli fyrir söl-
unni erlendis. Menn fóru nú að athuga, hvernig unt væri
að komast hjá misjafnri verkun á kjötinu. Niðurstaðan
varð 8Ú, að hyggilegast mnndi verða að koma sjer upp
sláturhúsum í þeim kauptúnum landsins, þar sem mikið
væri um sauðfjárslátrun.
Árið 1906 var stofnað til Sláturfjelags Suðurlands, og
árið eftir kom það sjer upp veglegu sláturhúsi í Rvík.
Þá voru einnig reist sláturhús nyrðra, á Akureyri og
Húsavík. Framtakssemi þessi vakti all-mikla eftirtekt
erlendis, eftir því sem sjeð verður af ritgerð Boga Th.
Melsteðs 1 21. árgangi „Búnaðarritsins". Sami höfundur
ritar einnig um saltkjöts-söluna og sláturhúsin í 22.
árgang „Búnaðarritsins", minnist þar nokkurra ágalla,
sem spilii fyrir kjöt-sölunni erlendis, og hvetur íslend-
inga til þess að fara utan og neina kjötverkun.
Sama ár fór Vigfús Guttormsson til Danmerkur í því
skyni, að athuga islenska saltkjötið, þegar það kæmi að
heiman, og kynna sjer um leið kjötverkun ytra. Vigfús
rak sig hrát.t á, að íslenska salt.kjötið var illa flokkað
og misjafnlega verkað, eins og skýrsla hans í 22. árg.
„Búnaðarritsins" ber með sjer. Fleiri íslendingar fóru
nú utan, til þess að kynna sjer slátrun og saltkjötsverk-
un. Dtanfarir þessar höfðu ágætan árangur, eins og
ráða má af leiðbeiningum Jóns Guðmundssonar 1 23.
árgangi „Búnaðarritsins". — Nú komst all-góður rek-
spölur á kjötverkunar-málið. Slaturhús voru reist í ýms-
um kauptúnum landsins, og kjötverkuuin batnaði með
ári hverju. Eftirspurnin erlendis óx nokkuð, og sölu-
verðið var sæmilega hátt.
Ánð 1912 voru sett lög um meðferð og mat á is-
lensku salt.kjöti og kjöt.matsmönnum gefið ítarlegt er-
indisbrjef. Eftir þessa ráðstöfun rná segja, að saltkjöts-
verkun vor kæmist í sæmilegt, horf, þótt nokkuð bæri á
skemda-umkvörtunum öðru hvoru. Áiið 1920 kvaddi
rikisstjórnin yfirkjötmatsmenn til ráðagerða um samn-