Hlín - 01.01.1919, Síða 77

Hlín - 01.01.1919, Síða 77
Hlin 77 Sortulyngslitur. (Brúnsvart). Lyngið er týnt sem bezt þroskað, svörtu leggjununt fleygt, en aðeins notaðar grænu klærnar. í 40 potta af vatni þarf 10 pund af þannig hreinsuðu lyngi, en legið hefur í vatni yfir nótt- ina. Lyngið skal síðan sjóða í 10—12 tíma. Síðan er lögurinn látinn kólna með lynginu í. Morguninn eítir er lyngið síað frá, en syo helt á það 4 pottum af heitu vatni, og svo aftur síað og þessunt 4 pottum bætt í löginn. í þessum lög má lita 4—5 pd. af ullardúk, plöggum eða bandi, er sjóðist í 3—4 kl.tíma. Stundum hef jeg látið eitt lóð af blásteini í löginn, en jeg efast um, að það hali nokkuð að þýða. 0 Hólmfríður Sigurðardóttir, Fljótsbakka, Bárðardal. Hallærisgrátt. (1 pund ull eða band). 3 lóð sortulyng, 3 lóð barinn brúnspónn,' i/2 lóð vitriól eða álún. Brúnspónninn og sortulyngið á að liggja í vatni yfir nótt, soðið svo í sama vatninu 2 stundir, síðan síað. Litunarefnið er þá látið ofan í og soðið y4 úr klukkustund. Síðan er litarefnið tekið upp úr og vitriólið látið út í löginn. Litarefnið er látið ofan í pottinn aftur og soðið í 15 mínútur. Mývetnsk konn. Reyktur fiskur. Þegar mikið berst að af íiski, hvort heldur er við sjávarsíðuna, eða er bændur flytja heim mikinn afla til notkunar um sláttinn t. d., er það mesta þjóðráð að reykja eitthvað af fiskinum. Hann er lagður í saltpækil 1—2 daga eftir stærð (ekki flattur), settur svo í reyk (eldhús) nokkra daga. Stórir fiskar mega hanga nokkrar vikur. Ýsa er bezt allra fiska til reykingar. Fiskinn má geyma vikum og jalnvel máhuðum saman á þurrum stað. Gulrætur, sem spretta vel hjer á landi og ættu að verða mikið ræktaðar, eru allra matjurta bestar með reyktum fiski. Þjeringar. Við skulum ekki vera að þjerast lengur. Það er útlent apaspil, sem aldrei þurfti að verða til. Þ. li.

x

Hlín

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.