Hlín - 01.01.1938, Síða 29
Hlín
27
er hve göturnar eru feikna breiðar, þar hafa menn
ekki skorið rúmið við neglur sjer, enda er þetta bæði
fallegra og þægilegra fyrir alla umferð. — Beggja meg-
in við veginn eru breiðir grasbekkir og trje gróðursett
þar í, svo göturnar verða sem einn iðgrænn laufskáli
að sumrinu til, er þetta æði mikið heilnæmara og hlý-
legra en þar sem auganu mætir ekkert nema grá og
köld steinsteypan. — Frammeð húsunum er grasblett-
ur eða dálítill garður eftir ástæðum, 25 fet á breidd.
Framan við nýrri hús er engin girðing milli götunnar
og garðsins, (þarna eru heldur engar kindur á rölti að
ónáða gróðurinn!) — Að húsabaki er lóðin, sem heyrir
til hverju húsi, mun stærri (150 fet), þar hafa menn
bílskúr, grasflöt, blóm og matjurtir, leikvöll fyrir börn-
in og sæti. Flest eru íbúðarhúsin einbýlishús. „Heimilið
er kastali minn“, segir Englendingurinn, og víst hugsar
fólkð hjer eitthvað því líkt. — Mörg af nýrri húsunum
eru einlyft, til þess að konurnar losni við stigana. — í
mörgum bæjum eru íbúðarhúsin flest úr timbri og
snúa gafli að götu og bilið milli húsanna aðeins 1—2
faðmar. — Lítur út fyrir að menn beri engan kvíðboga
fyrir eldsvoðum, en telja hinsvegar mikil þægindi að
því að allar lagnir verða mun ódýrari með þessu móti.
— Var þetta nábýli mikið næðissamara en ef tvær
fjölskyldur ættu að búa í sama húsi. Ekkert ónæði
varð maður var við á neinn veg með þessari tilhögun,
hver hafði alt sitt útaf fyrir sig og þurfti ekkert að
hafa saman við hina að sælda.
Allir reyna að eignast hús sín sjálfir, heldur en að
leigja, það er miklu algengara að húsin gangi kaupum
og sölum, en að menn byggi sjálfir, mun það þýkja ó-
dýrara. — Þessi almennu hús eru mjög laus við alt út-
flúr, bæði úti og inni, en þægileg og vistleg og tilhögun
öll mjög hagkvæm. — Harðviður 1 gólfum og stigum,
svo það er þægilegt að halda öllu hreinu. — Gluggar