Hlín - 01.01.1938, Qupperneq 56
54
Hlín
hjá konu prests, að barnið var fætt fyrir nokkrum
klukkustundum, en fylgjan var ókomin. Hafði krampi
yfirtekið konuna og virtist ekki um neitt að ræða nema
skilnað hennar við þetta líf. En þá eins og ætíð, studdi
Sigurfljóð máttur þess ósýnilega og tókst svo vel, að
henni auðnaðist að ná fylgjunni, svo konuna sakaði
ekki. — „Þó mun mega fullyrða“, sagði Sigurfljóð, „að
í það sinn þóknaðist Guði að nota mig sem verkfæri
sitt til að bjarga mannslífi“. — Nokkru seinna kom
Guðmundur bóndi í Vík á Flateyjardal til eyjarinnar,
sigldi hann með Sigurfljóð heim til sín. Var þá svo
hvasst að hún varð að liggja niðri í bátnum alla leið
hreifingarlaus að kalla. Síðan varð hún að ganga heim
til sín og er það fullkomin dagleið gangandi manni,
þótt á ljettasta skeiði sje. — Þegar þetta skeði, var
Sigurfljóð nýlega gift og komin á sjötta mánuð að
fyrsta barninu sínu. — Vorið 1878 giftist hún Helga
Helgasyni frá Vestari-Krókum. Reyndist hún ^ trúföst
eiginkona og besta húsmóðir og móðir, sem annaðist
heimili sitt með dugnaði og prýði allar þær stundir, er
hún mátti að því vinna. — Bjuggu þau hjón mestan
sinn búskap á Grund í Höfðahverfi. — Þessi voru börn
þeirra: Snæbjörn, er bóndi varð á Grund og dó þar
1916, þá aðeins 37 ára gamall, Magnús kaupmaður á
Akureyri, dáinn 8. október 1934, Hallfríður, ekkja á
Akureyri, Jón íþróttamaður, hefur dvalið flest sín
þroskaár erlendis, Baldur, trjesmíðameistari á Akur-
eyri og Benedikt, er dó í æsku. — Helgi var hið mesta
hraustmenni, hann er nú hátt á níræðisaldri, og farinn
að heilsu og kröftum. —
Þegar jeg átti síðast tal við Sigurfljóð sagði hún:
„Þegar jeg nú, útslitin og örvasa, lít yfir æfi mína,
verður mjer ríkast í huga þakklætið til Guðs fyrir að^
hafa um svo langt skeið trúað mjer fyrir svo mikil-
vægu starfi“,