Hlín - 01.01.1938, Side 114
112
Hlín
Vindrafstöð.
Á ferðum mínum um sveitirnar vestan hafs kom jeg
víða auga á háar grannar stengur, er reistar voru víða í
húsagörðum bændanna, voru á þeim vængir, er snjer-
ust í sífellu. Mjer varð starsýnt á þetta nývirki, hjelt í
fyrstu að þetta væru einhver mölunartæki, en fjekk
brátt upplýsingar um að tækið framleiddi rafmagn
fyrir bændabýlin. Ljetu allir ágætlega vel af þessu
áhaldi sem notuðu það, og þeir voru margir. Töldu þeir
það ódýrt og hentugt í notkun. Mjer kom strax til hug-
ar að þarna væri nokkuð fyrir ísland, nógan hefði það
vindinn og tækið væri ekki dýrara en svo, að eitt
heimili gæti staðið straum af því. — Jeg fjekk því
mann, sem hafði notað þessa litlu rafstöð um nokkurra
ára bil, til að skrifa um reynslu sína, og fer lýsing hans
hjer á eftir. — Tækið er búið til Bandaríkjum Ameríku
(Iowa), og eru um 500,000 í notkun víðsvegar um heim.
Jeg bjóst ekki við að neitt tæki af þessari tegund
hefði komið hingað til ísíands. En er jeg fyrir nokkrum
dögum skoðaði gróðurskála K. E. A. við Brúnhúsalaug
hjer í Eyjafirði, hvað sje jeg, nema eina samskonar
vindmyllu og í Canada! — Þarna var hún sett á mæni
hússins (vestra stóð myllan á háum stöngum í húsa-
garðinum). Tækið hefir verið í notkun í stöðinni í 2
ár, sett upp af þýskum garðyrkjumanni, er þarna starf-
aði. Jeg leitaði mjer ýmsra upplýsinga um tækið, bæði
hjá K. E. A. og garðyrkjumanninum, sem starfar við
gróðurskálann nú, og fer lýsing hans hjer á eftir. K. E.
A. hefur auk þess flutt inn 2 tæki, sem þegar eru lofuð,
aðeins ósett upp. Kostnaður við uppsetningu er hverf-
andi.
Verðið er um 200 kr. Þeir telja óþarft að hafa nema
einn rafgeymi, því flesta daga má safna krafti frá vind-
inum hjer á landi. H. B.