Árbók Félags útvarpsnotenda - 01.01.1930, Qupperneq 50
48
ÚTVARPSÁRBÓK
að eina ráðið til þess að gefa öllum þorra landsmanna
kost á að notfæra sér veðurfregnir, er það, að birta
þær í útvarpi. Tel eg víst, að eigi líði á löngu þar til
hætt verður að mestu leyti að senda veðurspár sím-
leiðis, og munu þó fleiri njóta en áður, auk þess sem
það léttir miklu starfi af landssímanum.
Eins og nú standa sakir eru veðurspár og veður-
atliuganir sendar með útvarpi á þessum tímum dags-
ins:
Kl. 8,45 að morgni virka daga eru sendar athug-
anir um liitastig, vind og veður frá öll-
um innlendum veðurskeytastöðvum, sem
þá eru fyrir hendi. Athuganir þessar eru
gerðar á stöðvunum kl. 8.
Kl. 10,15 er sent allnákvæmt yfirlit um veðurlag
hér á landi og i nágrenni þess. Auk þess
er gerð grein fyrir á hvaða forsendum
veðurspáin fyrir daginn og næstu nótt
byggist, og loks eru veðurspárnar fyrir
hvert veðurhérað lesin upp og endur-
tekin. Þá eru og lesnar veðurspár á
þýsku.
Kl. 4,10 síðd. er aftur gefið yfirlit um veðurlag-
ið og að hverju leyti aðstæðurnar hafa
hreyst síðan að morgninum, því næst
er lesin véðurspá fyrir nóttina og næsta
dag.
Kl. 7,45 að kveldi er enn varpað út veðurlýsing-
um og veðurspá fyrir nóttina og næsta
dag. Einnig eru þá lesnar veðurspár á
þýzlcu.
Á helgum dögum er veðurfregnum að eins út-