Dvöl - 01.04.1948, Qupperneq 5

Dvöl - 01.04.1948, Qupperneq 5
D VÖL 67 „Það er nú orðið þrisvar sinnum, síðan hann borgaði mér“. Þannig missti hún tennurnar og allan þann dag var skrafað um Nönnu og Stowall, og allt kvöldið heyrðu þeir, sem fóru framhjá tukthúsinu sönginn og öskrin í Nönnu. Þeir sáu hendur hennar utan um gluggarimlana og ýmsir stóðu við fyrir utan girðinguna og vóru að hlusta á hana og á fanga- vörðinn þagga niður í henni. Hún linnti ekki á fyrr en undir morg- unsárið, að varðmaðurinn heyrði dump og sarg uppi yfir og fór til og kom að Nönnu hengdri á gluggarimlinum. Hann taldi, að á- stæðan væri kókaín, því að enginn surtur myndi leggja í sjálfsmorð, nema á kókaíntúr, enda væri kók- aínfullur surtur ekki surtur lengur. Fangavörðurinn skar hana úr snörunni og hjargaöi hana við og barði hana á eftir, hýddi hana. Hún hafði hengt sig í kjólnum. Hún hafði gengið vel frá því, en þegar þeir gripu hana, var hún í engu nema kjólnum og hafði þess vegna ekkert til að binda hendurn- ar og gekk illa vað sleppa glugga- rimlinum. En vörðurinn heyrði þruskið og hljóp upp og kom að henni hengdri í glugganum og hún var allsber og kviðurinn farinn aö bunga lítilsháttar eins og ofur- lítill vindbelgur. Meðan Dilsý lá veik í kofanum sínum og Nanna eldaði ofan í okk- ur, tókum við eftir þvi, að svunt- an hennar bungaði æ meir út. Þetta var áður en pabbi bannaði Jesúsi að koma til okkar. Jesús var í eldhúsinu og sat fyrir aftan stóna, örið á svörtu andlit- inu líkast skítugum spotta. Hann k að þetta vatnsmelónu, sem Nanna gengi með undir svuntunni. „Ekki spratt hún samt á þinni tág“, sagði Nanna. „Á hvaða tág,“ sagði Kaddý. „Ég gæti höggviö tágina, sem hún spratt á,“ sagði Jesús. „Af hverju talarðu svona fram- an í börnunum,“ sagði Nanna. Hvers vegna ferðu ekki að gera eitthvað? Þarna léztu verða af því. Viltu, að húsbóndinn heyri orð- bragðið þitt hérna í eldhúsinu framan í börnunum?“ „Hvaða orðbragð?“ sagði Kaddý. „Hvaða tág?“ „Ég má ekki slóra í hvítra manna eldhúsi," sagði Jesús. „En hvítir menn mega slóra í mínu. Hvítur maður má ganga um mitt hús, ég get ekki meinað það. Þegar hvítan mann langar að koma í mitt hús, á ég ekki hús lengur. Ég get ekki bægt honum frá, en hann getur ekki rekið mig út. Það getur hann ekki.“ Enn var Dilsý veik í kofanum sín- um. Pabbi bannaði Jesúsi að koma heim. Dilsý var ennþá veik. Það leið og beið. Við vórum inni í bóka- salnum eftir kvöldmat. „Er ekki Nanna enn búin í eld- húsinu?“ sagði mamma. „Mér sýn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.