Dvöl - 01.04.1948, Blaðsíða 20
Eigið þér menningu hjartans
Eftir Gelett Burgess
í október í fyrra sendi ég Maríu
bók. Hún skrifaöi mér strax aftur
og þakkaði fyrir hana. En tveim-
ur mánuðum síðar fékk ég aftur
bréf frá henni og þá sagði hún
mér, hvernig henni hefði líkað
bókin — og lét mig þannig vita, að
hún hefði 1 raun og veru lesið
hana.
Nú spyr ég: Var þetta ekki falleg
og óvenjuleg framkoma í þessari
skeytingarlausu veröld? María átti
það, sem kallað er menning hjart-
ans. Þeim, sem eiga menningu
hjartans, er þakklæti nokkurs
konar veðskuld, sem sífellt ber að
greiða vexti af. Að fimm árum
liðnum getur María enn þá talað
um gjöf, sem hefur glatt haria. Það
er ekki verðmœti gjafarinnar, sem
er henni aðalatriðið, heldur hugs-
unin, sem á bak við hana felst. Og
þess vegna getur hún gefið þakk-
læti sínu framrás svona dásam-
lega lengi.
Sú hugulsemi, er einkennir menn
með menningu hjartans, setur blæ
sinn á öll þeirra verk. Jafnvel það,
að bjóða góðan daginn, er hægt
að gera meira eða minna aðlað-
andi. Athugið hvernig menntaður
leikari býður góðan dag, með hlý-
legum, stígandi raddhreimi — en
flestir láta sér nægja að muldra
stuttaralega og blælaust „daginn“!
Ég álít, að jafnvel það sé merki
vinsemdar, að menn tali skýrt.
Aftur á móti eru þeir ekki margir,
sem í raun og veru hlusta með
vingjarnlegri athygli. Flestir bíða
aðeins tækifæris að geta sagt
eitthvað sj álfir.
Menn vilja láta jólagjarfir og
tækifærisgjafir líta eins vel út og
hægt er. Þær eru vafðar í glæsi-
legan pappír og skreyttar skraut-
litum böndum. Slík gjöf í öllum
umbúðunum er tákn vináttunnar,
þegar hún er fegurst: vinsemd,
vafin þægilegum ytri umbúðum —
gjöf með háttvísi. Og hvað er svo
átt við með slíkri háttvísi, þegar
um er að ræða að gefa eitthvað?
Það má skýra þannig: Sá, sem á
menningu hjartans, leggur sig i
framkróka um að komast að því,
hvers vinir hans óska sér í raun
og veru. Til dæmis á ég góðan vin,
sem er svo hugulsamur, að ef ég
nefni eitthvað, sem mér fellur vel
í geð, þá setur hann það vand-
lega á sig, þangað til einhvern
tíma kemur að því að grípa megi
til þess. Ég gat þess einhvern tíma
við hann, að mér þætti mjög gott
sérstakt salat og vildi helzt alltaf
hafa það á borðum. Ég hef aldrei
borðað svo hjá honum síðan, að