Dvöl - 01.04.1948, Blaðsíða 66
128
D VOL
liann nefnir lsland. í’etla er niðurlagserindi
kvœðisins:
Að sækja ]>ig heini yfir höfin breið.
er heiminn að sjá og skoða,
úr sólseturs höfnum að liahla leið
og liverfa inn í morgunroða,
og vekja það upp, sem er æðst og bezt
og ei verður sagt né skrifað.
Að sækja ]>ig heim — það er happið mest,
að hafa til einhvers lifað.
Að lesa ljóðmæli Guttorms er aftur á
móti á sinn hátt að sækja liann sjálfan heim.
Bú heimsókn er nú auðveld orðin vegna
útkomu kvæðasafnsins.
I’á heimsókn ætti enginn að láta farast
fyrir.
I þeirri för getur lesandinn orðið fyrir því
mikla happi að „vekja það upp, sem er æðst
og bezt“ í þjóðernisvitund sinni.
Karl Kristjánsson.
liára blá — sjómannabókin 1948. Gils
Guðmundsson valdi efnið. Utg. Far-
manna- og fiskimannasamband Islands.
I fyrra gaf Farmanna- og l'iskimannasam •
bandið út bók, er nefndist Bára blá. Var
]>að sat'n frásagna og ijóða úr bókmenntuni
okkar að fornu og nýju um sæfarir og sigl-
ingar. Átti þó ekki að vera um bókmennta-
legl úrval að ræða, eins og Gils Guðmunds-
son, ritstjóri, sem valdi efnið, segir í formála,
heldur allfjölbreytt sýnishorn þess, sem ort
hefur \erið og ritað á íslenzka tungu um
sjómenn, siglingar og' sæfarir. Skyldi það
geyma margt hið bezta, sem skáldin hafa
kveðið um ]>etta efni. ásamt frásögnum sjó-
mannanna sjálfra og' annarra, sem lýst liala
lífi þeirra og störlum. Nú er komið út annað
bindi af safni þessu.
Salii þetta var mjög fjölbreytt og' skiptist
þar á gainalt og nýtt. Efninu er ekki raðað
eftir skyldleik eða aldri, heldur við það mið-
að, að ritið yrði sem skemmtilegast aflestrar
og þv í valið lesbókarform þannig að ljóðin
og' frásagnirnar skipfast á og fylgja hvorl
iiðru.
betta síðara bindi al’ Bára blá ■— sjómanna-
bókin 1948 —er með sama sniði, enda mun
þetta lesbókarform xinsælt af lesendum og
gera ritið heppilegra Lil ígripalestrar. I ]>ess-
um bókum er samau komið margt ]>að bezta
sem ritað hefir verið um þessi efni bæði að
fornu og nýju, og margar afburða skemmti-
legar frásagnir, og mestur fengur virðisl i frá-
sögnum eftir sjómenn sjálfa. sem eru margar
í bókinni. Meginhluli efnisins hefur áður
birzt á prenti, en þar er einnig að finna nokkr-
ar áður óprentaðar frásagnir. Hér skal ekki
drepið á einstakar frásagnir öðrum fremur,
þvi að akurinn er víðlendur og gróðurinn
margháttaður. En óhætf er að fullyrða að
|>etta er skemmtileg og vinsæl lestrarbók, sem
mörgum verður ánægja að grípa til og hvetur
til meiri lestrar. A. K.
TÍMARITIÐ DVÓL kemur út í fjórum heftum á ári eitt hefti á hverjum ársfjórðungi.
Það flytur lesendum sínum úrval ]>ýddra smásagna, fræðandi og skemmtandi greinar um
erlent og innlent efni, ljóð og ljóðaþýðingar, frumsamdar íslenzkár skáldsögur, ritgerðir,
]>jóðfræðaþætti, gamansögur o. fl.
Ritstjóri: ANDRÉS KRISTJÁNSSON. Útgefandi: Dvalarútgáfan.
Áskriftagjald kr. 20.00 árgangurinn. — Gjalddagi 1. júní. — Oskast greitt í póstávísun.
Áritun: Tímaritið Dvöl, pósthólf 561, sími 2928. Prentsmiðjan Edda h.f.