Dvöl - 01.04.1948, Blaðsíða 11
DVÖL
horfa, en hreyfðust þó ekki að
ráði.
Hún horfði á okkur þrjú saman
öll í einu. „Munið þið, þegar ég
svaf inni hjá ykkur um nóttina?"
sagði hún. Hún minnti okkur á,
að við vöknuðum snemma um
morguninn og fórum að leika okk-
ur. Við urðum að hafa lágt, þangað
til pabbi vaknaði og kominn var
morgunmatartími. „Viljið þið fara
og spyrja mömmu ykkar, hvort ég
megi vera hjá ykkur í nótt?“ sagði
Nanna. „Ég þarf enga dýnu. Við
getum leikið okkur aftur.“
Kaddý fór að spyrja mömmu.
Jason fór líka.
„Ég vil enga negra í svefnher-
bergin,“ sagði mamma.
Jason fór að skæla. Hann skældi,
þangað til mamma sagði honum,
að hann fengi engan ábæti í þrjá
daga, nema hann hætti. Þá sagð-
ist Jason hætta, ef Dilsý byggi til
súkkulaðiköku. Pabbi var við.
„Hvers vegna gerirðu ekki eitt-
hvað í þessu?“ sagði mamma. „Til
hvers er lögreglan?“
73
„Af hverju er Nanna hrædd við
Jesús?“ sagði Kaddý. „Ertu hrædd
við pabba, mamma?“
„Hvað ætli lögreglan gæti?“
sagði pabbi. „Úr því að Nanna hef-
ur ekki séð hann, hvernig ætti lög-
reglan að finna hann?“
„Því er hún þá hrædd?“ sagði
mamma.
„Hún segir, að hann sé hérna.
Hún segist vita, að hann sé hérna
í kvöld.“
„Samt borgum við skatta,“ sagði
mamma. „Og ég er látin vera hér
ein í þessu stóra húsi, meðan þú
fylgir negrakvensu heim.
„Þú veizt þó, að ég sit ekki um
húsið með rakhníf.“ sagði pabbi.
„Ég skal hætta, ef Dilsý býr til
súkkulaðiköku," sagði Jason.
Mamma sagði okkur að fara út, og
pabbi kvaðst ekki vita, hvort Jason
fengi súkkulaðiköku, en hann vissi
um annað, sem hann skyldi fá
undir eins.
Við fórum fram í eldhús og sögð-
um Nönnu: „Pabbi sagði, að þú
ættir að fara heim og læsa að þér
og þá værirðu óhult,“ sagði Kaddý.
„Óhult fyrir hverju, Nanna? „Er
Jesús reiður við þig?“
Nanna var aftur með bollann í
höndunum og studdi olnbogunum
á hné sér og hélt bollanum milli
hnjánna. Hún starði í bollann.
„Hvað hefur þú gert til að reita
Jesús til reiði?“ sagði Kaddý.
Nanna sleppti bollanum. Hann
brotnaði ekki í gólfinu, en kaffið