Dvöl - 01.04.1948, Blaðsíða 7

Dvöl - 01.04.1948, Blaðsíða 7
D VÖL „Hefir hún séð hann?“ sagði mamma. „Nei, en einhver negri stakk því að henni, að hann væri í bænum. Ég verð enga stund.“ „Þú ætlar að skilja mig eina eftir og fylgja Nönnu heim?“ sagði mamma. „Er þér annara um hana en mig?“ „Ég verð enga stund,“ sagði pabbi. „Þú ætlar að skilja börnin eftir vai-narlaus, og þessi svertingi á næstu grösum?“ „Ég fer með,“ sagði Kaddý. „Lof- aðu mér með, pabbi.“ „Hvað ætli hann gæti gert þeim, ef hann væri svo ólánssamur að komast í færi við þau?“ sagði pabbi. „Ég vil fara líka,“ sagði Jason. „Jason,“ sagði mamma. Hún átti við pabba. Það var auðheyrt á því, hvernig hún sagði nafnið. Eins og hún héldi, að pabbi hefði allan daginn verið að reyna að hitta á að gera það, sem henni líkaði sízt og hún hefði alltaf vitað, að eftir tímakorn myndi hann hitta á það. Ég hélt mér saman, því að pabbi og ég vissum báðir, að mamma myndi vilja láta mig vera hjá sér, ef henni dytti það bara í hug nógu snemma. Þess vegna varaðist pabbi að líta á mig. Ég var elztur. Ég var níu og Kaddý var sjö og Jason fimm. „Hvaða vitleysa," sagði pabbi. „Við verðum enga stund.“ 69 Anna var komin með hattinn. Við komum að stígnum. „Jesús hefur alltaf verið vænn við mig,“ sagði Nanna. „Ef hann átti tvo dali, gaf hann mér ann- an.“ Við gengum ofan stíginn. „Ef ég kemst stíginn á enda,“ sagði Nanna, „þá er ég sloppin.“ Það var ævinlega skuggsýnt á stígnum. „Hérna var það, sem Jas- on varð hræddur á allraheilagra- messu. „Ó, nei, nei,“ sagði Jason. „Getur Rakel frænka ekkert tjónkað við hann?“ sagði pabbi. Rakel frænka var gömul. Hún bjó í sjálfsmennsku í kofa handan við Nönnuhús. Hún var hvít á hár og reykti úr pípu á þröskuldinum sín- um allan daginn; ekki vann hún neitt upp á síökastið. Það var al- talað, að hún væri móðir Jesúsar. Stundum játti hún því, en annað veifið neitaði hún allri frændsemi við Jesús. „Jú, það held ég nú,“ sagði Kaddý. „Þú varst hræddari en Frony, meira að segja hræddari en T. P. Hræddari en surtur.“ „Það getur enginn tjónkað við hann,“ sagði Nanna. „Hann segir að ég hafi vakiö upp púkann í sér og þaö sé ekki nema eitt ráð til að kveða hann niður.“ „Jæja, hann er nú farinn,“ sagði pabbi. „Þú þarft ekkert að óttast nú. Og láttu nú hvítu mennina eiga sig.“ „Láta hvaða hvítu menn eiga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.