Dvöl - 01.04.1948, Page 6

Dvöl - 01.04.1948, Page 6
68 DVÖL —— ^ WILLIAM FAULKNER er amerískur rithöfundur, sem ritað liefur margt smásagna. IJann er fædd- ur árið 1897 og hlýtur því að teljast til hinnar yngri skáldakynslóðar. IJm hann hafa löngum staðið miklar deil- tir. Sumir hafa \arpað honum í yztu myrkur, eji aðrir hafið hann til skýja. Stíll hans og frásagnarhátlur er hvort tveggja mjög sérstætt og áhrif hans á yngri höfunda eru geysimikil. Sagan, sem hcr birtist í þýðingu Kristjáns Karlssonar, er talin meðal beztu smá- sagna hans og lýsa sérkennum hans sem rithöfundar mjög vel. v________________________________> ist hún hafa haft tímann fyrir sér viS uppþvottinn.“ „Sendu Quentin fram að gá,“ sagði pabbi. „Farðu fram og gáðu, hvort Nanna er búin. Segðu henni að hún megi fara heim.“ Ég fór fram. Nanna var búin. Diskarnir vóru á sínum stað og dautt í eldinum. Nanna sat á stól við kalda stóna. Hún leit á mig. „Mamma spurði, hvort þú værir búin,“ sagði ég. „Já,“ sagði Nanna. Hún horfði á mig. „Ég er búin að fullu og öllu.“ Hún horfði á mig. „Hvað er að?“ sagði ég. „Hvað er að?“ „Ég er bara surtla,“ sagði Nanna. „Og það er ekki mér að kenna.“ Hún horfði á mig úr stólnum framan við kalda stóna með strá- kolluna sína á höfðinu. Ég fór aftur inn. Þetta var það, köld stóin og allt eftir því. Maður sér í huganum eldhúsið bjart og glaðlegt og fullt af önn. Og hér var dautt í eldinum og diskarnir komnir í rekkið og enginn, sem langaði í mat þá stundina. „Er hún búin?“ sagði mamma. „Jamm,“ sagði ég. „Hvað er hún að gera?“ sagði mamma. „Hún er ekkert að gera. Hún er búin.“ „Ég ætla að gá að henni,“ sagði pabbi. „Hún er kannske að bíða eftir Jesúsi að fylgja sér heim,“ sagði Kaddý. „Jesús er farinn frá henni,“ sagði ég. Nanna hafði sagt okkur söguna af því, að einn morgun var Jesús farinn, þegar hún vakn- aði. „Hann er farinn frá mér,“ sagði Nanna. • „Brugðið sér til Memfis, býst ég við. Er að þvæla bæjarlög- regluna um stund, býst ég við. „Lítill skaði,“ sagði pabbi. „Vona, að hann ílengist þar.“ „Nanna er myrkfælin,“ sagði Jason. „Þú líka,“ sagði Kaddý. „Ó, nei, nei,“ sagði Jason. „Skræfa,“ sagði Kaddý. „Vertu ekki að þessu, Kanda- sía,“ sagði mamma. Pabbi kom inn aftur. Ég ætla að ganga með Nönnu ofan stíginn," sagði hann. „Hún segir, að Jesús hafi snúið við.“

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.