Dvöl - 01.04.1948, Qupperneq 39

Dvöl - 01.04.1948, Qupperneq 39
D VOL 101 skaparinn hefur gætt þá háum og dásamlegum röddum. Og síðan upphefja þeir sönginn .— Kvöldið er fagurt. — Mikið helvítis djöfull er þetta dásamlegt kvæði, strákar! Einn þeirra hefur gert þessa merki- legu uppgötvun, en enginn má vera að því að sinna slíku, svo upp- teknir eru þeir af sinni eigin list. Flaskan tæmist og það hefur eitthvað gerzt, eitthvað furðulegt. Máninn er ekki lengur kyrr á himni sínum og yfirborð jarðar- innar gengur í bylgjum eins og sjórinn hér úti á víkinni. Og þegar Nonni kemur inn í danssalinn á ný er gólfið ekki í sem beztu ásig- komulagi. Það hallast, tekur dýfur út í þessa hlið — út í hina hlið- ina. Það er fjandi skrítið allt hér inni. Hann er staddur í ókunnu húsi. Það er að vísu eitthvert fólk hér, en hann þekkir það ekki, mál- rómur þess er annarlegur, hreyf- ingar þess fjarri öllum sanni. — Kvöldið er fagurt, sólin sezt, — umlar hann. Það er tekið í hand- legg hans. Það er Bogga. — Hvað er að sjá þig, Nonni? spyr hún. Af hverju gerirðu þetta? En hann svarar því ekki. Hvað varðar hana um hann? Hann syngur og slær um sig. — Hvern djöfulinn vilt þú? spyr hann svo og reynir að horfa á hana, en það er komin yfir hana undarleg þoka. Andlit hennar er eins og einhver óljós hvítleitur depill í dökkum fleti kjólsins, og pallíetturnar á barmi hennar glóa sem hrævar- eldur fyrir sjónum hans. Hann sér hana. Þarna er hún. Hann hatar hana. Hann gæti kramið hana. Það væri nautn að kremja hana. Hún segir honum að koma og tala við sig. Hann er þægur og hlýðir. Svo togar hún hann með sér út fyrir vegg, leggur báða handleggi upp um háls hans og spyr: — Ó, elsku Nonni minn, af- hverju ertu svona? Þá bugast hann og segir, sem satt er, að hann elski hana svo voðalega mikið, hann kveðst elska hana svo mikið, að hann geti ekki séð aðra menn halda utan um hana. — Ó, hjartans, elsku Nonni minn, þú ert svo mikið flón, segir hún og hlær, því að það er dálítiö gaman, að hann skuli segja þetta. En svo segir hún, að hann geti ekki verið hérna, þegai' hann er svona. Ilann verður að fara heim. Foreldrar hans eru farnir að sofa. Það er öllu óhætt. Hún skal meira að segja láta fylgja honum heim. Hann stjakar henni frá sér. — Heim! Nei, aldrei! Hann verður ofsareiður. Hann ætlar nefnilega aldrei framar heim. Jæja, hvert ætlar hann þá? En hana varðar fjandann ekkert um það, ekki vit- und. Hann ætlar kannske að drepa sig, segir hann. Hana varðar ekk- ert um það. Henni kemur það ekk- ert við. — Heldurðu að ég hafi ekki vitað, að þú varst aö hlæja
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.