Dvöl - 01.04.1948, Síða 42

Dvöl - 01.04.1948, Síða 42
104 D VOL kvöldsins. Tilfinningar hans hafa snúizt í klökkva yfir óhamingju hans og einstæðingsskap. Á klöpp- unurn vestan við húsið nemur hann staðar. Hvert er hann ann- ars að fara? Harmonikutónarnir duna í eyrum hans hér úti. Og þarna stendur þessi andstyggilegi kumbaldi, þetta Félagshús. Hann hatar húsið, þennan djöfulsins kofa. Hann hatar allt, sem því er tengt, en mest hatar hann þó skrílinn, sem getur fundið ánægju af því að hringsnúast þarna inni. Hann skal gera þessu öllu grikk. En að honum skyldi ekki detta það í hug fyrr? Honum vex ásmegin við þá hugsun, sem nú hefur hann á valdi sínu. Hann er ekki lengur hikandi, hann er stæltur og ákaf- ur. Sá, sem gæti séð hann núna, myndi fyrst af öllu veita augum hans athygli, þau hafa fengið ein- kennilega dýpt. Að baki þeirra vakir hugsunin skýr og ljós. Kann- ske hefur hann aldrei hugsað jafn greinilega og skýrt. Hvert einasta smáatvik setur hann sér fyrir sjónir. Og þó eru það aðeins tvær persónur, sem öll athyglin beinist að. Hann hlær, en fram á varir hans nær hláturinn ekki, aðeins glott, kalt glott, líkast grettu. Hann læðist heim að húsinu, inn um dyrnar undir tröppunum. Það er myrkur, en hann þekkir leiðina. Hér inni í horninu á að vera tré- spónapoki. Já, það stendur heima. Þurrir, mjúkir spænir. Nú skal þessi bölvaði kofi ekki lengur verða hon- um til armæðu. — Þei, það kemur einhver! Það má enginn sjá hann hér. Hann bíður, heldur niðri í sér andanum og bíður. Hann heyrir hvískrað frammi við dyrnar. Orðaskil eru ógreinileg, enda er fótatak dans- fólksins á gólfinu yfir höfði hans sem hrapandi skriða. Hann bíður lengi. Nei, þau fara ekki enn þarna frammi. Hann sezt niður með varúð og hallar sér upp að tréspónapokanum. Ákjósanleg- ast væri að farast hér sjálfur í eldinum, en hann finnur, að til þess muni sig skorta kjark. Hann mun því fara héðan út og að því búnu getur hann hent sér fram af bryggjunni. Hann er fullkomlega rólegur, það hvarflar ekki að hon- um efi á því að áform hans sé fylli- lega réttlátt. Hann situr hér og bíður þess eins, að þau fari, skötu- hjúin þarna frammi. Hryggðin, hugaræsingurinn, hatrið og of- stopinn, allt er það horfið. Skap hans er í öruggu jafnvægi, því að hann hefur tekið ákvörðun og sér- stök vellíðan fyllir brjóst hans. Hann er ákveðinn, bíður og hugsar. Og loksins, loksins fara þau. Hann rís á fætur og framkvæmir verknað sinn með ískaldri ró, strýk- ur eldspýtunni um kveikiflöt stokksins. Það snarkar, þegar log- inn kviknar og fölur ljósbjarminn titrar um myrka kjallaraholuna, á miðstöðvarketilinn. hefilbekkinn

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.