Dvöl - 01.04.1948, Page 52

Dvöl - 01.04.1948, Page 52
114 DVOL hálfábyrgðarlaus vera, sem maður verður að taka eins og hún er, með umlíðunarsemi. Fínn maöur, sem vissi, að hann var það og kon- an sín væri einstaklega lukkuleg, ef hún aðeins vildi nota skynsem- ina. Árin liðu. Hún eignaðist tvö litil börn. Þegar fæðingarkvölunum var lokið í fyrra skiptið og hún lá með barnið við hlið sér, fannst henni hún hvíla á eyju kyrrðar og friðar. Tíminn streymdi framhjá, en hún barðist ekki lengur um í bylgjum hans. Hún var á þurru landi og sá, hvernig Karl Lúðvík og frænk- urnar óðu upp í hné í vandamálum hversdagsins. Hún var gagntekin víðri, kyrri sælu, öruggri vissu um að hafa drukkið hvern bikar lífs- ins í botn, jafnt bikar gleði og þjáninga, og að hafa verið virk- ur þátttakandi í kraftaverki. En í síðara skiptið vissi hún fyr- irfram, að þetta var ekki nein var- anleg kennd. Hversdagurinn náði fljótlega tökum sínum aftur. Hann náði einnig tökum á undrinu, og breytti því í votar bleyjur og næt- urvökur og þref við Karl Lúðvík, sem vildi hafa, að börnin byrjuðu á Múller strax nokkurra vikna gömul. Hún talaði aldrei um barnaupp- eldi eða hússtörf, og fékk orð fyrir að vera óvenjulega kærulaus eig- inkona og móðir. Árin liðu án afláts, og það kom riddaraliðsforingi. Það var hjartaknosari úr höfuð- staðnum. Hann vakti stórkostlega athygli í þessum litla bæ og kveikti í hjörtum, hvar sem hann fór. Frúr og ungmeyjar, sem urðu á vegi hans, stokkroðnuðu. Hér og þar stofnaði hann til ofurlítilla ástar- ævintýra, á sinn hirðuleysislega og yfirlætiskennda hátt, og skildi fórnarlambið eftir í hryggilegu á- standi. Og borgardansleikurinn kom, og liðsforinginn heiðraði hann með návist sinni. Hann brá sér snöggv- ast inn í danssalinn og sveiflaði frúm og frökenum af fullkominni danslist. Síðan settist hann niður við spilaborð í einu klúbbherberg- inu, og herrar bæjarins, sem höfðu dregið sig í hlé meðan stóð á sýn- ingu liðsforingjans, eins og þeir kölluðu það, drögnuðust aftur fram á gólfið. En seinna um kvöldið fékk liðs- foringinn aftur þá hugmynd að dansa. Og hann fékk þá hugmynd að bjóða upp smávaxinni, aðsóps- lítilli kennarafrú í ljósbláum kjól, því það vildi svo til, að hún sat þennan dans. Hvers vegna fékk hann þessa hugmynd? Ja, hver veit. Út með veggjunum sátu margar duttlungafullar fegurðar- dísir, og hver um sig vænti þess, að það yrði hún. En það varð ekki hún. Það varð engin þeirra. Einn

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.