Dvöl - 01.04.1948, Síða 53

Dvöl - 01.04.1948, Síða 53
DVÖL liösforingi getur verið jafnóskilj- anlegur og ein kona. ■Nú hneigði hann sig fyrir þess- ari þýðingarlitlu, bláklæddu konu, og undrunarkliður barst meðfram öllum veggjum. Sú þýðingarlitla stóð upp, enn meira forviða en nokkur annar, luktist í arma líðs- foringjans, og þau dönsuðu. Þau dönsuöu lengi. Gólfið um- hverfis þau varð autt. í draumi heyrði hún hvískriö með veggjun- um, sá höfuð kvennanna hallast ýmist í þessa áttina eða hina, eins og fyrir áttskiptum andvara. Þau töluðu og töluðu. Og liðsforinginn hætti ekki. Ó, bara hann hætti aldrei, bara hann vildi halda á- fram! Nú stóð henni á sama um þau bæði frænkurnar og þau öll hin. Þau voru leikbrúður, henni ó- viðkómandi leikbrúður. Einnig maðurinn hennar var leikbrúða. Hann kom nú fram í dyr einar, og hún skynjaði augu hans sem tvo fasta nagla i hverfandi óskapnaði og ringulreið. Það fæddist í henni eitthvað nýtt. Músíkin var ekki lengur utan hennar. Hún varð fólginn kraftur í líkama hennar, hreif hana á vald sitt, ríkti yfir henni. Þegar hún sleppti af sér taumhaldinu, fleytti músíkin henni létt og auðveldlega yfir allar hinar hættulegu og ó- væntu sveiflur liðsforingjans. Einu sinni er þau dönsuðu framhjá fiðlaranum, sem sneri út að saln- um og fylgdi þeim með augunum, 115 kom henni skyndilega í hug, aö þannig væri það með strenginn, þegar leikið væri á hann og titring- ur hans væri eitt með hljómnum. Og hún var gripin undarlegri löng- un, aö dansa burt frá liðsforingj- anum, þyrlast af eigin ramleik yfir gljáfægt gólfið, í blindri hlýðni við hljómfallið, sem krafð- ist að taka allt í sína þjónustu, handleggi hennar, allan líkama hennar. En þarna sátu frænkurnar. Og þarna sat Karl Lúðvík. Og liðsfor- inginn sveiflaði henni einu sinni ennþá, og hún framdi engin ólík- indi. Síðan nam hann staðar. Með lítilli armhreyfingu skilaði hann henni þangað, sem hann hafði sótt hana. Hann varp öndinni. Og hann sagði: Það veit Guð, þér kunnið að dansa, frú. Já .... við yður, svaraði sú blá- klædda ósjálfrátt. Hún var rjóð og fersk, það var nýr blær á andliti hennar, og henni gleymdist reynd- ar að vera þegjandaleg. Liðsforinginn hugsaði: Hún er sannarlega ekki sem slökust. Hann sagði: Þetta verðum við að endurtaka. Má ég biðja um næsta dans, frú? Og hann sló hælunum saman, þurrkaði sér um ennið með silki- klút og hvarf í hliðarherbergi til aö svala sér yfir einu glasi og fá upp- lýsingar. Hún sat sem lömuð. Hún hafði setið og horft á hann allt kvöldið

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.