Dvöl - 01.04.1948, Side 58

Dvöl - 01.04.1948, Side 58
120 Tea frænka lýsti því þegar yfir, að hún fyrir sitt leyti vildi miklu heldur vera kyrr heima í hótelinu. Það væri meira en nóg að eyða peningum í tvo aðgöngumiða að slíkri skemmtun .... meira en nóg. Kvöld kom. Þau voru setzt í sæti sín, hún í uppnámi, Karl Lúð- vík kaldur og rólegur, fámæltur og með krosslagðar hendur. Uppi á sviðinu reikaði ungt barn, með svartan drengjakoll og langa bera fótleggi, hægt um eftir hljóm- unum frá einu næturljóði Chopins, uppgötvaði, með alls konar gleði- merkjum ímyndaðan himin yfir sér, ímyndað landslag umhverfis sig og ímyndaða blómabreiðu undir fótum sér, það beygði sig niður og tíndi ímynduð blóm, skoðaði þau vandlega og tíndi fleiri, rétti úr sér með faðminn fullan af blómum, lét votta fyrir andaktugri hrifningu í svip sínum, krýndi ímyndað minnismerki blómsveigum og kraup að lokum á kné við fótstall þess. Mætti ég heldur biðja um að sjá góða leikfimismenn sýna Múller, sagði Karl Lúðvík, er þessu var lokið. Hann leit ekki á konu sína. Hún sat grafkyrr. Það var eins og þegar hún gifti sig, hún fékk ekki að vera í friði, henni gafst ekki ráðrúm til að grafast fyrir um til- finningar sínar. Það var sem hún stæði á gægjum, hlustandi, njósn- D VÖL andi, bíðandi, dauðhræðd að missa af einhverju. Eftir á gæti hún hugsað um þetta. Og eftir því sem kvöldið leið, breyttist barnið á sviðinu. Hinar snöggu, hræðslulegu hreyfingar urðu frjálsari, fengu rúmtak, fyllt- ust ungri orku. Varmi brast í loga, af feimnislegum andlitsdráttum lítillar stúlku fæddist opið, fallegt konubros. Lófatakið, sem í byrjun var strjált og frá fáum einum, varð almennt, hófst og steig. Dansarn- ir höfðu hver sitt nafn og efni .... Það skipti litlu. Aðalatriðið var þetta, að hlekkjuð vera kastaði af sér fjötrum slnum, varð frjáls og sjálfri sér lík. Kemur fram í fyrsta skipti, stóð á efnisskránni. Karl Lúðvík fékk sig til að fara nokkrum viðurkenningar-orðum um þetta. Hún er í mjög góðri æf- ingu, sagði hann. Síðasti dansinn hét Bacchanal. Bacchanal, sagði Karl Lúðvík. Hm, Bacchanal, hvorki meira né minna. Hann sneri sér með upplýsingar að konu sinni. Hátíð til heiðurs Bacchusi. Bacchus var .... nú, þarna er hún þá komin .... já, það var alltsvo vínguðinn .... ég skal skýra það betur fyrir þér á eftir. Hún bandaði hendinni óþolin- móðlega. Ekkert gat verið lítilvæg- ara þessa stundina en útskýring- ar Karls Lúðvíks. Bara hann vildi þegja. Uppi á sviðinu sprengdi ung og

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.