Valsblaðið - 01.05.2002, Page 13
Framtíðin
breytinga á aðstöðu sem nauðsynlegar
verða vegna skipulagsbreytinga skuli
Valur njóta tekna af sölu byggingarréttar.
Samkvæmt samningnum skuldbindur
Valur sig til þess að ráðstafa því fé sem
fæst fyrir sölu byggingarréttar eingöngu
til greiðslu skulda og til uppbyggingar
íþróttastarfsemi að Hlíðarenda og þeirra
mannvirkja sem áætlað er að byggja skv.
deiliskipulagstillögunni. Að því marki
sem tekjur af sölu byggingarréttar duga
ekki til að standa straum af fram-
kvæmdakostnaði þeirra mannvirkja sem
getið er um í samningnum mun Reykja-
víkurborg leggja fram fé til uppbygging-
ar þeirra sbr. sérstakan samning þar um.
Stefnt verður að því að uppbyggingunni
verði lokið á næstu 3-5 árum.
Núverandi íþróttahús félagsins eru í
slæmu ásigkomulagi og mjög brýnt að
skapa félagsmönnum, jafnt iðkendum
sem áhorfendum, viðunandi aðstöðu sem
stenst kröfur þær sem nú eru gerðar til
slíkra mannvirkja. Því er í tillögunni gert
ráð fyrir byggingu nýs íþróttahúss og að
syðra íþróttahús félagsins verði fjarlægt.
Gert er ráð fyrir að eldra íþróttahúsið
standi áfram sem og fjósið og skrifstofu-
og félagsaðstaða félagsins. Gert er ráð
fyrir að færa aðalleikvang félagsins af
núverandi stað á vallarstæði malarvallar
upp að nýju íþróttahúsi. Stúka er ráðgerð
utan á íþróttahúsi (sambyggð) og að
undir henni verði búningsklefar fyrir
bæði hið nýja íþróttahús sem og hinn
nýja aðalleikvang. Stærð á landssvæði
Vals gerir félaginu síðan kleift að gera í
tillögunni ráð fyrir því að byggt verði
hús yfir gervigrasvöll sem skapa myndi
nýja og mjög spennandi æfingaaðstöðu
fyrir iðkendur í knattspymu. Leikvangur-
Reynir Vignir formaður Vals og Ingibjörg
afmœlisdegi Vals, 11. maí. (Mynd ÞO)
inn yrði þá á milli hins nýja íþróttahúss
og knattspyrnuhússins í nokkurs konar
gryfju sem getur orðið mjög spennandi
umgjörð um kappleiki. I Reykjavík aust-
an Elliðaáa eru ekki mörg landsvæði sem
leyfa að knattspyrnuhús rísi þar. Því er
þessi tillaga einstök og mannvirkið
tryggir boðlega heilsársaðstöðu fyrir
knattspymumenn sem er lykill að fram-
gangi og þróun knattspymunnar hér á
landi.
Valur stefnir að því að reisa og/eða
endurbyggja eftirtalin íþróttamannvirki á
íþróttasvæði Vals eins og það verður af-
markað til framtíðar:
1. íþróttahús, 1800 m2 að stærð, með
áfastri áhorfendaaðstöðu fyrir aðal-
leikvang og búningsklefum undir, og
1000 m2 tengibyggingu með félags-
og þjónustuaðstöðu.
Reynir Vignir, Hörður Gwmarsson og Grímur Sæmundsen voru fulltrúar Vals í viðrœð-
um og samningagerð félagsins við Reykjavíkurborg. (Mynd ÞO)
Sólrún Gísladóttir undirrituðu samninginn á
2. Aðalleikvang.
3. Gervigrasvöll sem gert skal ráð fyrir
að byggja megi yfir síðar, þannig að
þar komi knatthús án búningsklefa,
stærð um 9000 m2.
4. Endurbygging/bætur eldri mann-
virkja sem ekki verða fjarlægð.
5. Grassvæði, stærð um 19.000 m2, þar
af um 10.000 m2 utan lóðar.(afnota-
réttur)
6. Bílastæði og lóðarfrágangur.
Gert er ráð fyrir því í deiliskipulaginu að
sem mest samnýting fáist á svæðinu hvað
varðar bílastæði jafnt ofanjarðar sem í
bílageymslum undir húsunum sem nýtt
verði undir atvinnustarfsemi. Álag varð-
andi notkun bílastæða er annað vegna
íþróttastarfsemi Vals en það sem verður
vegna annarrar starfsemi á svæðinu.
Starfsemi í íþróttamannvirkjunum er að
stofni til um kvöld og helgar öfugt við
hefðbundna atvinnustarfsemi. Því ætti að
nást hagkvæm heildarnýting út úr svæð-
inu með þessum hætti. Tillaga Vals gerir
ráð fyrir því að innkeyrsla á svæðið verði
frá núverandi Flugvallarvegi og að hún
verði einnig notuð til þess að hleypa um-
ferð inn á svæði fyrir vestan Valssvæðið.
Aðkoma verður frá Bústaðavegi og fram-
tíðar Hlíðarfæti um Flugvallarveg.
Hér er um djarfa og kostnaðarsama til-
lögu að ræða og því hafa Valsmenn leit-
að leiða til þess að sýna fram á að engu
að síður sé um raunhæfa tillögu að ræða
og það hefur komið á daginn.
Reykjavík í maí 2002
Kristján Asgeirsson
ALARK arkitektar ehf.
Valsblaðið 2002
13