Valsblaðið - 01.05.2002, Page 17
Framtíðarfólk
Gunnar Skúlason leikmaður 11. flokks í körfubolta
Fæðingardagur og ár:
7. maí.1986.
Nám:
Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Hvað ætlarðu að verða:
Sjúkraþjálfari eða eitthvað í sambandi
við körfuna.
Hvað gætirðu aldrei hugsað þér að
verða:
Eitthvað sem tengist Skjálfta eða Counter-
Strike. Eða kennari í ökuskólanum.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár:
Valsmenn halda sér uppi í körfunni og fót-
boltanum og verða Islandsmeistarar í hand-
bolta. Það verður sem sagt gott ár að Hlíð-
arenda.
Af hverju körfubolti:
Vinir mínir voru í þessu og þar sem ég á
svo „svala“ vini þá vildi ég vera eins og
þeir.
Eftirminnilegast úr boltanum:
Körfuboltabúðir í Duke, North Carolina
síðasta sumar og vera valinn Valsari árs-
ins í körfunni á síðustu uppskeru hátíð.
Ein setning eftir veturinn ’02-‘03:
Laglegt strákar.
Skemmtilegustu mistök:
Ég var einu sinni í heita pottinum í
Laugardalslauginni og klappaði ein-
hverjum manni á magann sem ég hélt að
væri pabbi minn en svo var það bara ein-
hver maður sem ég hafði aldrei séð áður,
það var fáránlega fyndið.
Fyndnasta atvik:
í körfuboltabúðum á Stykkishólmi síð-
asta vetur þegar Gústi þjálfari var að
sýna okkur eitt „cut“ og missti jafnvægið
og datt með miklum látum utan í vegg.
Því gleymi ég aldrei.
Stærsta stundin:
Þegar við vorum í Svíþjóð eftir 8. flokk
og urðum b-meistarar í '85 árgangnunr.
Hvað hlægir þig í sturtu: Þegar Coach
Gústi kemur inn með fötu fulla af
ísköldu vatni og skvettir á einhvem.
Athyglisverðastur í 11. flokki:
Ég verð að segja Högni þótt hann sé í
drengjaflokki, hann er góður gaur og
hefur skemmtilegar skoðanir á öllu.
Hver á ljótasta bílinn/hjólið:
Frikki á ljótasta bílinn en hann er líka sá
eini sem á bíl þannig að bíllinn hans er
líka flottasti bflinn.
Hvað lýsir þínum húmor best:
Eitthvað á kostnað annarra, ég er mjög
stríðinn.
Fleygustu orð:
Ég sagði einu sinni þegar ég var eitthvað
að flýta mér að tala: Ég meiddi og datt
mig.
Mottó:
Maður vinnur ef maður skorar fleiri stig
en hitt liðið.
Fyrirmynd í boltanum:
Jay Williams, besti leikmaður sem ég hef
sjálfur séð spila.
Leyndasti draumur:
Að sjá LA Lakers komast EKKI í
playoffs.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Þegar ég er heitur á æfingu, það er rnjög
gaman.
Hvaða setningu notarðu oftast:
Frikki nenniru að skutla mér heim?
Hvað er það fallegasta sem hefur veri
sagt við þig:
Valsmenn eru bestir.
Fullkomið laugardagskvöld:
Góð spóla, Sprite og Risa þristur.
Hvaða flík þykir þér vænst um:
Náttbuxurnar mínar, þægilegastar
heimi.
Besti söngvari:
Pharrel Williams því hann gerir svo o
dans í Justin Timberlake myndbandinu,
Besta bíómynd:
Sixth Sense því endirinn kom mér alveg
rosalega á óvart.
Besta bók:
Mýrin eftir Arnald Indriðason í augna-
blikinu eina bókin sem ég man eftir að
hafa lesið.
Besta lag:
Nothing Else Matters með Metallica.
Hugsa alltaf um eitthvað fallegt þegar ég
heyri það.
Eftir hverju sérðu mest:
Að hafa ekki lært meira á píanó.
Ef þú yrðir að vera einhver annar:
Frikki því hann er underground.
4 orð um Gústa þjálfara:
Fyndinn, Góður, Töffari, Hössler.
Valsblaðið 2002
17